fbpx
Mánudagur 09.mars 2026
Fréttir

Ung íslensk stúlka rænd á Tenerife – „Hágrátandi og miður sín“

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 9. mars 2026 11:03

Frá Los Cristanos á Tenerife. Mynd: Wikipedia

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Anna Kristjánsdóttir, fyrrum vélstjóri og þekktasti Tenerife íbúi þjóðarinnar greinir frá því að í gær hafi hún komið að ungri íslenskri stúlku sem var rænd þar á eyjunni.

„Ég skrapp út á Babylon í gærkvöldi,“ segir Anna í daglegum pistli sínum á Facebook, en um er að ræða bar þar á Eyjunni þar sem Anna og fleiri Íslendingar halda oft til, hittast og spjalla um daginn og veginn.

Á Babylon hafi hún hitt vinapar og unga íslenska stúlku sem var „hágrátandi og miður sín.“

„Örfáum mínútum áður hafði karlmaður ráðist að henni og rænt hana hálsfesti sem hún hafði borið um hálsinn. Þetta var þó áður en skyggja tók rétt við tröppurnar frá stígnum Calle Paris og niður að hótelinu Atlantida. Antonio barþjónn á Babylon hringdi í lögregluna, en það var of mikið að gera til að þeir gætu sinnt þessu útkalli enda karnival í gangi þessa dagana. Skömmu síðar komu frænkur stúlkunnar á Babylon og varð af hinn ánægjulegasti kvöldfundur þrátt fyrir hræðilega byrjun á kvöldinu.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 3 dögum

Borgarlínan klýfur Sjálfstæðisflokkinn í borginni

Borgarlínan klýfur Sjálfstæðisflokkinn í borginni
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Arnar Helgi telur greiðslu fyrir p-stæði bæta aðgengi – „Fjárhagslegt hagsmunamál“

Arnar Helgi telur greiðslu fyrir p-stæði bæta aðgengi – „Fjárhagslegt hagsmunamál“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Íslenskir fjárhundar í alvarlegu dýraníðsmáli – „Við viljum fá þessi dýr sem er verið að fara illa með og koma þeim á ástrík heimili“

Íslenskir fjárhundar í alvarlegu dýraníðsmáli – „Við viljum fá þessi dýr sem er verið að fara illa með og koma þeim á ástrík heimili“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Þetta er sú stofnun sem Íslendingar bera mest traust til

Þetta er sú stofnun sem Íslendingar bera mest traust til