fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Þorsteinn sagði sig úr Viðreisn á síðasta ári og hjólar í Flokk fólksins

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 21. janúar 2026 10:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þorsteinn Víglundsson, fyrrverandi þingmaður og forstjóri Hornsteins, tók þá ákvörðun á síðasta ári að segja skilið við Viðreisn.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í viðtali við hann í Morgunblaðinu í dag, en auk þess að gegna þingmennsku fyrir Viðreisn á árunum 2016 til 2020 var hann félags- og jafnréttismálaráðherra árið 2017.

„Ég hætti í pólitík árið 2020 og tók þá ákvörðun á síðasta ári að segja skilið við Viðreisn. Ég var mjög ósáttur við ríkisstjórnarsamstarfið við Flokk fólksins sem er popúlískur lýðskrumsflokkur og besta dæmið um óábyrgt stjórnmálaafl sem mun reynast ríkiskassanum mjög dýrt,“ segir Þorsteinn meðal annars og er ómyrkur í máli.

Í viðtalinu nefnir hann löggildingu sáttmála Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðra. Að hans mati var óvarlegt að lögfesta hann með þeim hætti sem gert var og talar Þorsteinn um „óútfylltan tékka á sveitarstjórnarstigið“.

„Það var ábyrgðarhluti hjá Viðreisn og Samfylkingu að taka Flokk fólksins inn í ríkisstjórn,“ segir hann en tekur þó fram að honum þyki áfram vænt um Viðreisn. Hann vilji þó ekki láta skilgreina sig út frá þessum tíma í pólitíkinni.

„Ég er frjálslyndur hægrimaður. Við Íslendingar eru öll sósíaldemókratar í einhverju formi,“ segir hann.

Þorsteinn lýsti því yfir á Facebook í morgun að hann hygðist bjóða sig fram til formennsku í Samtökum iðnaðarins á Iðnþingi þann 5. mars næstkomandi. Áður en Þorsteinn var kjörinn á þing var hann framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins á árunum 2013 til 2016.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”