Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs, vill að ríkið skoði sölu á Landsbankanum til að fjármagna framkvæmdir samkvæmt samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins. Hún hafnar alfarið hugmyndum um að leggja sérstök veggjöld á stofnvegi sem þegar eru til staðar.
Þetta kemur fram í umfjöllun Morgunblaðsins í dag.
Óvissa ríkir um fjármögnun samgöngusáttmálans og hefur verið bent á að tekjur af sölu byggingarréttar í Keldnalandi munu ekki skila sér árið 2028 eins og gert hafði verið ráð fyrir.
Ásdís segir að ríkið hafi aðrar leiðir til að fjármagna framkvæmdirnar en að leggja frekari álögur á íbúa höfuðborgarsvæðisins.
„Sem dæmi vil ég nefna að það má selja Landsbankann, en eigið fé bankans er um 350 milljarðar króna,“ segir Ásdís við Morgunblaðið.
Hún telur að með sölu bankans og niðurgreiðslu skulda gæti ríkið sparað um 25 milljarða króna árlega í vaxtakostnað, eða um tíu milljarða þegar tekið hefur verið tillit til arðgreiðslna.
„Við munum alfarið hafna einhvers konar skattlagningu á höfuðborgarbúa umfram það sem þegar hefur verið gert,“ segir hún.
Orri Björnsson, formaður bæjarráðs Hafnarfjarðar, tekur undir áhyggjur af fjármögnun samgöngusáttmálans og segir ríkið þurfa að leggja fram skýr svör.
„Við erum á því að taka þurfi upp samkomulagið og flýta framkvæmdum, en peningar þurfa að vera til og ríkið þarf að koma með þá,“ segir Orri.
Hann bendir á að ríkið hafi átt að standa undir tæplega 90 prósentum kostnaðarins. Hafnarfjörður hafi til dæmis lagt áherslu á stærsta vandamálið í bænum sem er Reykjanesbrautin að Kaplakrika.
Bæði Ásdís og Orri taka undir með Hildi Björnsdóttur borgarstjóra um að ekki eigi að innheimta sérstök veggjöld á núverandi stofnvegum. Þau útiloka þó ekki slíka gjaldtöku vegna nýrra framkvæmda, svo sem Miklubrautarganga, þar sem ökumenn hefðu áfram kost á gjaldfrjálsri leið.