Forsaga málsins er sú að í gær fór í dreifingu skjáskot af X-reikningi Saad þar sem hann birti mynd frá íslenska barnum Gilligogg þar sem hanga tvær veggmyndir eftir listamanninn Þránd Þórarinsson.
Sjá einnig: Egill lætur umdeildan fyrirlesara heyra það – „Hvílíkur endemis auli“
Myndbirti hann og hæddist að listaverkunum í færslu á samfélagsmiðlum. „Þessar tvær veggmyndir með þekktum íslenskum listamanni sameina íslamskar/palestínskar táknmyndir og þjóðsögur Íslands. Ég vissi ekki að saga Íslands væri undir svona miklum áhrifum frá frelsishetjunum í Hamas,“ skrifaði Saad.
Egill deildi þessari færslu og sagði: „Þessi náungi var fluttur hingað inn um daginn og látinn halda fyrirlestur í Hörpu. Ég segi bara eins og er, miðað við þetta, hvílíkur endemis auli.“
Saad er kanadískur þróunarsálfræðingur, líbanskur gyðingur að uppruna, sem starfar við Concordia háskóla í Montreal. Hann heldur einnig út hlaðvarpi þar sem hann fjallar um þjóðfélagsleg málefni. Eins og gengur og gerist sýnist hverjum sitt um málflutning hans og hefur hann til dæmis verið gagnrýndur fyrir hispurslaust tal um múslima og trans fólk.
Gunnlaugur Jónsson svaraði Agli fullum hálsi á Facebook-síðu sinni í gær.
„Auli? Egill Helgason. Kallarðu mann aula sem fær fjölda morðhótana fyrir að standa á skoðun sinni – en lætur það ekki knésetja sig? Kallarðu hann það fyrir það að hafa sjálfur með fjölskyldu sinni þurft að þola ofríki þeirra hryðjuverkasamtaka sem hafa herjað á Gyðinga og þykja í besta falli undarlegt hvað Íslendingar upp til hópa eru illa upplýstir og taka undir málstað þessara skúrka? En þú ert hetja, Egill, að mæta ekki á staðinn þegar hann var á landinu. Þú ert hetja að ráðast gegn honum þegar hann er farinn. Ég hefði a.m.k. getað borið upp spurningar við hann ef þær hefðu komið fram áður.“
Hann segir síðan ekki rétt að Saad hafi verið „látinn halda fyrirlestur í Hörpu“ eins og Egill hafði á orði.
„Ég bað hann um að koma. Hann er eftirsóttur fyrirlesari og frábær fræðimaður. Jarðtengir umræðu sem er komin út í skurð í mörgum málum. Hefur birt marga tugi ritrýndra vísindagreina í sínu fagi. Margir mættu og nutu, þótt auðvitað séu þeir ekki allir sammála honum um allt. Ferskur vindur í staðna umræðu á Íslandi. Ég hef varla undan að svara þakkarskilaboðum frá fólki sem mætti (og það veit þar af leiðandi meira um málið en þú.) Harpa fékk tilmæli um öryggisvörslu frá lögreglunni vegna þessa viðburðar (fordæmalaus, að mér skilst). Það mat var byggt á ummælum um hann og hegðun þess hóps sem þú telur væntanlega svo göfugan. En já, hann er auli,“ sagði Gunnlaugur.
Egill svaraði athugasemdum Gunnlaugs og sagðist standa fastur á sínu. Nefndi hann aðra færslu frá Saad þar sem hann lét sænsku baráttukonuna Gretu Thunberg heyra það.
„Þessar tvær færslur mannsins bera vott um skelfilegan aulagang. Annars vegar að halda því fram að listaverk sem eru á vegg veitingastaðar í Miðbænum séu til marks um stuðning við Hamas. Og hins vegar að kalla sænska baráttukonu gegn loftslagsbreytingum vangefna og stuðningsmanneskju hryðjuverka þegar hún fer á skipi til að reyna að andæfa hinum skelfilegu fjöldamorðum og hungri í Palestínu,“ sagði Egill og bætti síðan við:
„Já, auli er frekar milt orð um þetta. Líklegt jafnvel að þetta sé vondur maður.“
Hægt er að sjá samskiptin öll hér að neðan.