Keith Kellogg, sérstakur sendifulltrúi Trump í málefnum Rússlands og Úkraínu, sagði ummæli forsetans fyrrverandi vera „ábyrgðarlaus“.
Það reitti Medvedev til reiði að Trump sagði að Pútín sé „klikkaður“ en það gerði hann í kjölfar harðra árása Rússa á Kiyv. Hann bætti síðan um betur og skrifaði á Truth Social: „Það sem Vladímír Pútín skilur ekki er að ef ekki væri fyrir mig, þá hefði margt slæmt komið fyrir Rússland og ég meina MJÖG SLÆMT. Hann leikur sér að eldi!“
Medvedev, sem var forseti Rússlands frá 2008 til 2012 (Pútín var þá forsætisráðherra og dylst fáum að Medvedev var í raun bara leppur hans í embættinu) tók ummælum Trump illa og skrifaði: „Ég veit bara um einn slæman hlut – þriðju heimsstyrjöldina. Ég vona að Trump skilji þetta!“