fbpx
Föstudagur 06.júní 2025
Fréttir

Húsfélagið í vanda vegna þess að einn „nískupúki“ stöðvar allt – „Hann mætir á enga húsfundi og vill aldrei staðfesta neinar framkvæmdir“

Kristinn H. Guðnason
Fimmtudaginn 5. júní 2025 17:30

Laga þarf ýmislegt í fjölbýlishúsinu. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eigandi íbúðar í fjölbýlishúsi er ráðalaus vegna þess að nágranni hans stöðvar eða tefur allar framkvæmdir og tekur ekki þátt í neinu. Tími sé kominn á framkvæmdir á þaki og fleiru.

Greinir eigandinn frá stöðu sinni á samfélagsmiðlinum Reddit og spyr ráða þar sem hann segist ekki vita hvert annað sé hægt að leita.

„Þannig er mál með vexti að ég á litla íbúð á jarðhæð í fjöleignarhúsi (6 íbúðir), og það er ekki búið að halda húsinu vel við. Það er því löngu kominn tími á allskonar viðgerðir (þak, múr, gluggar),“ segir hann. „Vandamálið er einn eigandinn (sem býr ekki á staðnum heldur leigir hana út) sem er svona týpískur fúll á móti sem allt stoppar á.“

Mætir ekki á húsfundi

Nefnir hann meðal annars að húsfélagið sé búið að eyða endalausum peningum í að láta laga leka inn á hæðina fyrir neðan hann vegna ónýtra þakglugga hjá honum. Lekið hafi með fram baðherberginu í íbúðinni hans niður í sameign.

„Allir tóku sig saman og bættu hljóðvist í sínum íbúðum á sama tíma nema hann ætlaði að gera sína íbúð sjálfur og gerði það svo aldrei, og svo mætti lengi telja,“ segir hinn óheppni.

En það eru ekki aðeins verklegir hlutir sem hann tekur ekki þátt í. Heldur mætir hann ekki á húsfundi.

„Hann mætir á enga húsfundi og vill aldrei staðfesta neinar framkvæmdir (heldur bara pæla í möguleikum og „spyrja spurninga“). Lokasvarið hans er yfirleitt að hann getur sko gert þetta ódýrara sjálfur og neitar að taka þátt, og sleppir því svo að gera það sem hann sagðist ætla að gera,“ segir hann. „Vandinn er að við hin í húsfélaginu erum öll frekar óreynd og vitum ekki alveg hvað gerist ef við kjósum bara um framkvæmdir og tökum svo lán á húsfélagið og svo neitar þessi aðili bara að borga sinn hluta. Við höfum viljað gera þetta í góðu svo þetta endi ekki í lögfræðingum en það virðist bara stefna í það. Væri leiðinlegt ef húsfélagssjóðurinn færi allur í lögfræðikostnað út af einum nískupúka.“

Spyr hann hvað sé best að gera í svona málum. Að láta húsfélagið taka lán og rukka hann, með innheimtu ef hann borgar ekki eða hvort hægt sé að vísa svona málum til einhvers sem þvingar hann til að gera úrbætur. Húsfélagið sé með skýrslu sem staðfesti að gluggarnir hans séu ónýtir.

Meirihlutinn ræður en mikilvægt að boða fund rétt

Hefur færslan fengið talsverða umræðu. Bendir til að mynda einn á að einfaldur meirihluti ráði.

„Meirihluti ræður á löglega boðuðum húsfundi. Þið takið bara ákvörðun án fýlupúkans ef hann mætir ekki,“ segir einn.

Annar bendir hins vegar á að það sé mikilvægt að láta hann vita af húsfundinum. Annars þarf hann ekki að taka þátt í kostnaðinum. „Aldrei að taka ákvarðanir án þess hann viti af þeim,“ segir hann.

„Gjaldkeri húsfélagsins sendir rukkun á eigendur í gegnum bankann og ef nágranninn greiðir ekki á eindaga er ótrúlega lítið mál að setja skuldina í innheimtu í gegnum Motus og þau sjá um allt fyrir ykkur. Þið þurfið alls ekki lögfræðiaðstoð til þess,“ segir einn.

„Mæli ekki með að húsfélagið taki lán. Þeir sem eiga ekki fyrir framkvæmdum taka lán og borga félaginu. Þú vilt ekki treysta á að þessi íbúi borgi sinn hluta í hverjum mánuði,“ segir annar.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Heimir Már um málþóf stjórnarandstöðunnar – „Það er greinilega erfitt að jafna sig á því að hafa verið hafnað af þjóðinni í síðustu kosningum“

Heimir Már um málþóf stjórnarandstöðunnar – „Það er greinilega erfitt að jafna sig á því að hafa verið hafnað af þjóðinni í síðustu kosningum“
Fréttir
Í gær

Jón tekur upp hanskann fyrir múslimana á Keflavíkurflugvelli – „Sé ekki að þessir karlangar hafi brotið neitt af sér“

Jón tekur upp hanskann fyrir múslimana á Keflavíkurflugvelli – „Sé ekki að þessir karlangar hafi brotið neitt af sér“
Fréttir
Í gær

Landfari opnar nýtt þjónustuverkstæði og frumsýnir nýjan rafmagnsvörubíl

Landfari opnar nýtt þjónustuverkstæði og frumsýnir nýjan rafmagnsvörubíl
Fréttir
Í gær

Herkastalinn seldur á 865 milljónir – Bætist í myndarlegt og sístækkandi eignasafn Bergeyjar

Herkastalinn seldur á 865 milljónir – Bætist í myndarlegt og sístækkandi eignasafn Bergeyjar
Fréttir
Í gær

Íbúar að verða trylltir á dularfullu „djöflablístri“ við Hallgerðargötu – „Búið að halda fyrir mér vöku síðustu tvær nætur“

Íbúar að verða trylltir á dularfullu „djöflablístri“ við Hallgerðargötu – „Búið að halda fyrir mér vöku síðustu tvær nætur“
Fréttir
Í gær

Netverjar keppast við að hringja í númerið sem sendi Semu Erlu þessi viðbjóðslegu skilaboð

Netverjar keppast við að hringja í númerið sem sendi Semu Erlu þessi viðbjóðslegu skilaboð
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Mygla setur stórt strik í reikninginn í skólastarfi á Þórshöfn – „Þetta er mikið áfall“

Mygla setur stórt strik í reikninginn í skólastarfi á Þórshöfn – „Þetta er mikið áfall“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Jón Þór fær 6 ára fangelsi fyrir hrottafengna árás á fyrrum sambýliskonu sína

Jón Þór fær 6 ára fangelsi fyrir hrottafengna árás á fyrrum sambýliskonu sína