Viðskiptavinir Krónunnar söfnuðu 750 þúsund krónum í söfnun fyrir stuðnings- og ráðgjafasetrið Bergið Headspace sem fór fram í verslunum Krónunnar dagana 28. og 29. maí. Þá bauðst viðskiptavinum Krónunnar að bæta 500 krónum eða meira við innkaup sín í lokaskrefi greiðslu á sjálfsafgreiðslukössum verslana um allt land. Krónan jafnaði framlag viðskiptavina og hlýtur Bergið því 1,5 milljón krónur sem renna óskertar í starf Bergsins sem miðar að því að veita ungmennum á aldrinum 12 til 25 ára fría ráðgjöf og aðstoð til að bæta líðan og auka virkni þeirra í samfélaginu.
Eva Rós Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Bergsins er að vonum ánægð með árangurinn. „Við hjá Berginu erum afar þakklát þeim viðskiptavinum Krónunnar sem kusu að leggja okkur lið og sömuleiðis Krónunni fyrir að vekja athygli á starfseminni og jafna framlag viðskiptavina. Til Bergsins leita 120 ungmenni í hverri viku og mun fjárhæðin nýtast í áframhaldandi þjónustu við þann stóra hóp sem þarf á stuðningi og ráðgjöf að halda,“ segir Eva Rós.
Söfnunin var tilkomin vegna ísfötuáskorunar á TikTok sem var ætlað að minna á mikilvægi þess að hlúa að andlegri heilsu. Í því samhengi bendir Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar á að framtíðin liggi í unga fólkinu okkar og því sé mikilvægt að styðja við úrræði eins og Bergið sem veiti ungmennum aðstoð og ráðgjöf þegar á þarf að halda.
„Það skiptir sköpum að styðja við unga fólkið okkar. Það er augljóst að þörfin fyrir þjónustu Bergsins er mikil og raunveruleg og við í Krónunni erum stolt af því að geta lagt okkar af mörkum. Þessi söfnun sýnir hvað við getum gert þegar við stöndum saman en margt smátt gerir sannarlega eitt stórt. Við þökkum viðskiptavinum okkar innilega fyrir þátttökuna en án þeirra hefði þetta ekki verið mögulegt,“ segir Guðrún.
Bergið Headspace hefur frá árinu 2019 veitt ungmennum á aldrinum 12 til 25 ára ókeypis ráðgjöf án tilvísunar. Um er að ræða svokallaða lágþröskuldaþjónustu þar sem stuðningur, ráðgjöf og fræðsla er veitt á forsendum unga fólksins. Ráðgjöfin nær til málefna eins og geðheilsu, náms, sjálfsmyndar og félagslegra tengsla. Í Berginu er lagt upp með að skapa notalegt og öruggt umhverfi fyrir ungt fólk sem óskar eftir aðstoð fagfólks og notenda með fjölbreytta reynslu.