fbpx
Föstudagur 13.júní 2025
Fréttir

Höfðu ekki erindi sem erfiði eftir að hafa sakað byggingarfulltrúa Hafnarfjarðar um innrás í einkalífið

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 12. júní 2025 17:00

Ráðhús Hafnarfjarðar/Mynd: Ja.is

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur staðfest þá ákvörðun byggingarfulltrúa Hafnarfjarðar að samþykkja ekki gerð dyraops á burðarvegg í fjöleignarhúsi í bænum sem eigendur eignarhluta í húsinu höfðu ráðist í. Hafði byggingarfulltrúinn áður en hann komst að þessari niðurstöðu ítrekað farið fram á að fá að skoða húsnæðið en eigendurnir höfnuðu því og sökuðu byggingarfulltrúann um ólögmæt afskipti af einkalífi þeirra.

Mál tengd húsinu hafa áður komið til kasta nefndarinnar en í janúar á þessu ári felldi hún úr gildi ákvörðun byggingarfulltrúans sem beindist að þessum sömu eigendum. Hafði byggingarfulltrúinn lagt á dagsektir vegna framkvæmda og meintrar óleyfisbúsetu í geymslum sem tilheyra eignarhlut eigendanna. Vildi byggingarfulltrúinn meina að eigendurnir hefðu í leyfisleysi útbúið íbúð í geymslunum en því vísuðu þeir á bug og nefndin taldi að byggingarfulltrúinn hefði ekki fært sönnur á að búið væri í geymslunum og ekki rannsakað málið á fullnægjandi hátt.

Meintir byggjendur óleyfisíbúðar í Hafnarfirði fá uppreist æru

Í þetta sinn snerist málið um gerð hurðarops á milli rýma á burðarvegg. Eigendurnir lögðu inn tilkynningu til byggingarfulltrúans í mars á þessu ári um framkvæmdina. Því var hafnað í apríl að samþykkja framkvæmdina á þeim grundvelli að samþykki annarra eigenda að eigninni skorti. Í kjölfarið kærðu eigendurnir málið til nefndarinnar.

Hafi krafist inngöngu

Í kærunni kom fram að í febrúar á þessu ári hafi byggingarfulltrúinn óskað eftir því að fá að skoða húsnæðið án tafar. Því hafi verið vísað til föðurhúsanna þar sem byggingarfulltrúinn hafi ekkert inn á heimili eigendanna að gera til þess að leggja mat á framkvæmdir út frá eigin geðþótta þar sem viðkomandi væri ekki með tilskilda menntun í burðarþolsfræðum. Hafi í kjölfarið byggingarfulltrúa verið vísað á að leita formlegs úrskurðar dómara. Þrátt fyrir það hafi ítrekanir frá byggingarfulltrúa haldið áfram að berast með miklum ákafa og þrýstingi sem eigendurnir hafi upplifað sem íþyngjandi og ólögmæt afskipti af einkalífi sínu. Í ljósi þess að engar samþykktar burðarvirkisteikningar liggi fyrir vegna umræddrar fasteignar hafi verið leitað til sérfræðings í burðarþoli til að framkvæma faglegt mat á áhrifum dyraopsins.

Eigendurnir sögðust síðan hafa lagt inn tilkynningu um framkvæmdina í mars en hún hafi snúist um gerð dyraops í burðarvegg í geymslurými í kjallara sem tilheyri þeirra séreign.

Sögðu eigendurnir að með hefði fylgt skýrsla burðarþolsérfræðingsins, þar sem hann hafi komist að þeirri niðurstöðu að framkvæmdin hefði engin áhrif á burðarvirki hússins. Vildu eigendurnir meina að ekki væri þörf á byggingarleyfi vegna framkvæmdarinnar þar sem hún væri innan marka byggingarreglugerðar sem kvæði á um að viðhald eða breytingar á burðarvirki sem sé innan við 5 prósent af heildarburðarvirki húss teljist leyfilegar án þess að byggingarleyfi þurfi til.

Eigendurnir vildu sömuleiðis meina að ekki væri þörf á samþykki annarra eigenda hússins þar sem framkvæmdin raskaði ekki lögvörðum hagsmunum þeirra. Framkvæmdin væri innan séreignar þeirra og hefði engin áhrif á sameign. Vildu þeir sömuleiðis meina að synjun byggingarfulltrúans byggði á röngum lagaskilningi og röngum forsendum um eignaskipan hússins. Eigendurnir sögðu byggingarfulltrúann hafa ekki rannsakað málið nægilega og að sambærilegar framkvæmdir hefðu verið leyfðar og því hefði jafnræðis ekki verið gætt gagnvart þeim.

Óljóst

Í andsvörum Hafnarfjarðarbæjar var farið fram á að kærunni yrði vísað frá á þeim grundvelli að hún hefði borist of seint. Að öðru leyti var vísað til þess að samkvæmt lögum um fjöleignarhús væru burðarveggir sameign og eigendum væri óheimilt að breyta sameign án samþykkis annarra eigenda. Þar sem slíkt samþykki hafi skort í þessu máli hafi synjunin verið lögmæt.

Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hafnaði því að vísa málinu frá þar sem kæran hefði borist innan við mánuði eftir að eigendunum var kynnt ákvörðun byggingarfulltrúans.

Nefndin segir að fyrir liggi að eigendurnir hafi komið í veg fyrir að byggingarfulltrúi hafi átt þess kost að skoða hinar umdeildu framkvæmdir og leggja mat á hvort þær falli að áðurnefndri undantekningu í byggingarreglugerð. Vísar nefndin til gagnanna frá áðurnefndum sérfræðingi í burðarþoli sem eigendurnir lögðu fram og segir þar koma fram að hann mæti það svo út frá byggingaruppdráttum að langlíklegast væri um burðarvegg að ræða þar sem opið hefði verið gert. Mat hann byggingaruppdrættina svo að op að þessari stærð og staðsetningu hafi ekki áhrif á burðargetu eða stífleika hússins. Þetta hafi þó verið þó sagt með fyrirvara um að hann hafi ekki farið á staðinn og skoðað opið og vegginn.

Nefndin segir að í ljósi þessa sé ekki unnt að meta hvort að áðurnefndar undanþáguheimildir frá byggingareglugerð eigi við um þessa framkvæmd sem eigendurnir hafi óskað eftir að byggingarfulltrúi myndi skrá sem tilkynningarskylda framkvæmd. Það sé ekki hægt að útiloka að framkvæmdin geti raskað lögmætum hagsmunum annarra eigenda að eigninni. Hafi byggingarfulltrúa því verið rétt og skylt að samþykkja ekki framkvæmdina án frekari rannsóknar.

Ljóst er því að ekki er í gildi leyfi fyrir opinu á burðarveggnum, sem þegar hefur verið gert. Hvort málið verður rannsakað frekar til að kanna hvort það samræmist undanþáguheimild byggingarreglugerðar og hvað eigendunum mun finnast um það á væntanlega eftir að koma í ljós.

 

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Vanda Sig segir Akureyri vanvirða starfsfólk og unglinga – „Tóku óskiljanlega ákvörðun ekki alls fyrir löngu“

Vanda Sig segir Akureyri vanvirða starfsfólk og unglinga – „Tóku óskiljanlega ákvörðun ekki alls fyrir löngu“
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Reiði út af Tesla hleðslustöð á Egilsstöðum – Ekkert bólar á nýjum miðbæ sem kynntur var með pompi og prakt

Reiði út af Tesla hleðslustöð á Egilsstöðum – Ekkert bólar á nýjum miðbæ sem kynntur var með pompi og prakt
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Kraftaverk í Indlandi: Breskur maður lifði flugslys Air India af og hlaut aðeins minniháttar skrámur

Kraftaverk í Indlandi: Breskur maður lifði flugslys Air India af og hlaut aðeins minniháttar skrámur
Fréttir
Í gær

Móður blöskraði þegar hún borgaði fyrir matarkörfuna

Móður blöskraði þegar hún borgaði fyrir matarkörfuna
Fréttir
Í gær

Herdís gerði allt brjálað: Sagði að börn ættu ekki að sofa úti í barnavagni – „Endemis rugl er þetta!“

Herdís gerði allt brjálað: Sagði að börn ættu ekki að sofa úti í barnavagni – „Endemis rugl er þetta!“
Fréttir
Í gær

Stöð 2 og Vodafone kveðja – Svona verða breytingarnar

Stöð 2 og Vodafone kveðja – Svona verða breytingarnar