Síðustu ár hefur sorpílátum fjölgað um land allt, ekki síst vegna aukinnar flokkunar. Það sem á að stuðla að sjálfbærni og betra umhverfi getur þó skapað vandamál ef ílátin eru illa staðsett eða aðgengi þeirra erfitt bæði fyrir notendur og starfsfólk í sorphirðu.
,,Við hjá Terra losum tugþúsundir íláta á hverju ári um allt land. Við sjáum í okkar verkefnum hversu mismunandi aðstæður geta verið á milli heimila og hverfa. Víða eru ílátin staðsett þannig að ómögulegt er að nálgast þau. Okkar starfsfólki mæta þröngir stígar, brattar tröppur eða illa við haldið svæði sem gera aðgengi hættulegt eða í einhverjum tilfellum óframkvæmanlegt,“ segir Anna Jóna Kjartansdóttir gæða-, umhverfis- og öryggisstjóri hjá Terra.
Áhætta fyrir starfsfólk og íbúa
Ýmsar aðstæður skapa ekki aðeins óþægindi heldur fela í sér verulega hættu fyrir bæði starfsfólk og íbúa að sögn Önnu Jónu.
,,Starfsfólk Terra þarf oft að lyfta og draga þung ílát yfir ótryggt undirlag eða í gegnum þröng og hættuleg svæði, sem eykur líkamlegt álag og slysahættu. Það er á ábyrgð eigenda hvers heimilis og fyrirtækja að aðgengi sé í lagi bæði á sumrin og á veturna. Það snýr að því að aðgengi að ílátum sé greitt, að ekkert sé fyrir og tröppur, gangstígar séu hreinsað til dæmis af snjó og klaka á veturna. Ílátin eru jafnframt oft staðsett nærri gönguleiðum, hjólastígum og leiksvæðum þar sem íbúar, þar á meðal börn og gangandi vegfarendur eiga leið um. Ef ílát eru ranglega staðsett eða erfitt er að nálgast þau getur það skapað hættu fyrir bæði starfsfólk og almenning. Við höfum undanfarið unnið að uppfærslu á áhættumati allra starfa innan Terra. Í þeirri vinnu höfum við tekið út aðstæður hjá heimilum, fjölbýlishúsum og fyrirtækjum víðs vegar um landið. Við höfum jafnframt sent ábendingar og myndir til ábyrgðaraðila íláta með tillögum,“ segir Anna Jóna.
Sveitarfélög og íbúar gegna lykilhlutverki
Pétur Gísli Jónsson hjá Terra segir að fleiri þurfa að koma að borðinu. ,,Sveitarfélög og íbúar gegna lykilhlutverki í því að bæta aðgengi og öryggi. Samráð við íbúa áður en breytingar eru gerðar er mikilvægt, margar nytsamlegar hugmyndir koma einmitt frá þeim sem nýta svæðin daglega. Með sameiginlegu átaki má breyta gömlum og óhentugum lausnum í öruggar, snyrtilegar og sjálfbærar. Við verðum að muna að sorpílát eru mikilvæg eining í umhverfinu og okkar daglega lífi. Rétt staðsetning og gott aðgengi að þeim skilar sér í betri flokkun, skilvirkari vinnu og öruggari aðstæðum fyrir alla.“