fbpx
Föstudagur 06.mars 2026
Fréttir

Íslenskur karlmaður lést í janúar eftir að hafa smitast af berklum

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 4. febrúar 2026 07:29

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Íslenskur maður sem greindist með berklasmit í fyrra lést í janúar, en um var að ræða einstakling sem dvaldi gjarnan í gistiskýli í miðborginni þar sem hann er talinn hafa smitast.

Greint er fá þessu í Morgunblaðinu í dag.

Í gær var greint frá því að átta starfsmenn á bráðamóttöku Landspítalans hefðu greinst með berkla við skimun, þar á meðal voru læknir, hjúkrunarfræðingur og móttökuritari. Engir starfsmenn munu þó hafa orðið veikir eða sýnt einkenni.

Í Morgunblaðinu í dag er rætt við Ragnar Frey Ingvarsson, sérfræðilækni á spítalanum og formann Læknafélags Reykjavíkur, og er hann ómyrkur í máli.

„Aðstæður á bráðamóttökunni hafa í meira en áratug verið mjög slæmar. Lítið fer fyrir sóttvörnum þegar tugir sjúklinga eru á göngum og erfitt að verja sjúklinga og starfsmenn fyrir mögulegum sýkingum. Þegar aðstæður eru svona lengi leiðir það óumflýjanlega til þess að eitthvað brestur og það hefur augljóslega gert það í þessu tilfelli.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Barnaheill hefja neyðarsöfnun fyrir börn í Mið-Austurlöndum

Barnaheill hefja neyðarsöfnun fyrir börn í Mið-Austurlöndum
Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Opnar dyr að bernskuminningum Elísabetar

Opnar dyr að bernskuminningum Elísabetar
Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Einar tekur við af Birni sem ritstjóri DV – Ari ráðinn aðstoðarritstjóri

Einar tekur við af Birni sem ritstjóri DV – Ari ráðinn aðstoðarritstjóri
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Haukur lýsir áhyggjum sínum: „Enginn einn atburður myndi kosta þjóðina meira“

Haukur lýsir áhyggjum sínum: „Enginn einn atburður myndi kosta þjóðina meira“