

Daníel Örn Sigurðsson töframaður segir að varaþingmaður Miðflokksins, Anton Sveinn Mckee, hafi bjargað lífi sínu á föstudagskvöld.
Hópur unglinga réðst á Daníel með höggum og spörkum við strætóskýli hjá Veitingastaðnum Aktu Taktu í Garðabæ, við Hafnarfjarðarveg. Anton var þar á ferð í bíl, stöðvaði og greip inn í átökin. Daníel segir í nýrri Facebook-færslu:
„Ég get ekki lýst því augnabliki þegar ég lá á götunni og starði í augun á manninum bakvið stýrið og reyndi að öskra eitthvað í líkingu við „hjálp“ vegna þess að ég man ekki eftir því. En þannig varð mér bjargað þetta kvöld. Þegar Anton Sveinn Mckee kom að mér liggjandi í blóði og hindraði að árásarmennirnir gengu frá mér dauðum með spörkum. Hann einfaldlega bjargaði lífi mínu og er ég honum mjög þakklátur.“
Málið er nú til rannsóknar hjá lögreglu sem stórfelld líkamsárás en Anton Sveinn sagðist í viðtali við Vísir.is á laugardaginn undrast að enginn annar hafi gripið inn í atburðarásina en margir bílar keyrðu framhjá vettvanginum. „Það er eitthvað skrítið í gangi í íslensku samfélagi ef náungakærleikurinn er kominn svona langt niður,“ sagði hann.
Einn árásarmannanna gerði sig líklegan til að halda áfram að misþyrma Daníel eftir að Anton Sveinn hafði gripið inn í atburðarásina. Honum tókst hins vegar að halda aftur af honum þar til lögregla kom á vettvang.