

Guðni rifjar upp ummæli Kristrúnar fyrir síðustu kosningar, frá sumrinu 2024, þar sem hún sagði ekki tímabært að fara í þá vegferð að ganga í Evrópusambandið. „Ég veit að fólk heldur að ég sé að blöffa með þetta. Það er bannað að plata. Það er bannað að plata í þessu starfi,” sagði Kristrún í hlaðvarpsþættinum Chess after dark sumarið 2024.
Guðni segir í grein sinni að nú sé Kristrún „staðin að því að plata og hafi svikið kosningafyrirheit“ eins og formaður Vinstri grænna gerði árið 2009.
„Nú hefur það gerst að forsætisráðherra, Kristrún Frostadóttir, kveður upp sinn stóra dóm, að gengið skuli til þjóðaratkvæðagreiðslu um að ganga í Evrópusambandið. Þessi gjörvilegi stjórnmálamaður með útgeislun og margt sem prýðir hana lætur nú undan húsófriðnum í ríkisstjórninni og fer gegn fortakslausu loforði í kosningabaráttunni um að aðild að ESB væri ekki á dagskrá, nú væru mikilvægari mál í forgrunni, næsta kjörtímabils,“ segir Guðni.
Hann skautar að vísu fram hjá því að talað er um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu í stefnuyfirlýsingu Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins. „Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu fer fram eigi síðar en árið 2027,“ segir orðrétt þar.
Guðni segir að Kristrún hafi ekki sett ESB-aðild á dagskrá í kosningabaráttunni og ekki síst þess vegna hafi flokkur hennar fengið veglegt fylgi í síðustu kosningum.
„Eitt er víst, að Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra getur ekki sagt „þjóðin ákveður þetta“ og staðið stikkfrí og skilað auðu. Já já og nei nei af hennar hálfu er forkastanlegt, þannig getur ekki leiðtogi þjóðar talað,“ segir Guðni sem sér ekki fyrir sér að innganga í ESB myndi reynast gæfuspor fyrir Ísland og er óhætt að segja að framtíðarsýn hans sé svört ef gengið verður inn í sambandið.
„Kristrún Frostadóttir leikur sér ekki að frelsinu og fullveldi Íslands, þar verður hún að segja satt og setja fram grundvallaratriði um hvað aðild að ESB hefði í för með sér. Að ganga til aðildarviðræðna og ætla að gerast aðili að ESB er ákvörðun sem hefur afleiðingar í för með sér.“