fbpx
Föstudagur 13.febrúar 2026
Fréttir

Bendir fyrirtækjum á að beina frekar stuðningi sínum til fjárvana HSÍ

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 3. febrúar 2026 15:30

Sigurður G. Guðjónsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það fór ekki framhjá neinum að EM í handbolta lauk um helgina þegar Ísland þurfti að lúta í gras gegn Króötum í leik um bronsverðlaun mótsins. Árangur liðsins var engu að síður frábær, sæti í undanúrslitum á kostnað margra stórkostlegra handboltaþjóða, og ljóst að íslenskur handbolti á mikið inni ef vel er haldið á spöðunum.

Talsvert var fjallað um það magn auglýsinga sem birtist á RÚV á meðal veislunni þjóð en þar borguðu fyrirtæki iðulega stórfé til að senda baráttuóskir til landsliðsins og HSÍ. Sigurður G. Guðjónsson, hæstaréttarlögmaður og stuðningsmaður íslenska liðsins, bendir á í færslu á morgun að þessi fyrirtæki séu mögulega að beina stuðningi sínum í ranga átt.

„RÚV gerði einnig gott mót, ef tekið er mið af þeim fjölda auglýsinga sem birtust í tengslum við útsendingar frá leikjum íslenska landsliðsins. Sérstaka athygli vöktu auglýsingar þar sem auglýsandi lýsti yfir stuðningi við landslið með greiðslu til RÚV. RÚV lætur ekkert af því fé sem þessar auglýsingar skópu því renna til HSÍ, sem er fjárvana og getur varla haldið úti landsliðum. Þeir sem í raun vilja styðja HSÍ ættu að beina stuðningi beint til HSÍ en ekki til RÚV. Sú stofnun hefur úr nægu að moða,“ skrifar Sigurður G.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fer úr FH í Hauka
Fréttir
Í gær

Fór í hart vegna áforma um meðferðarheimili fyrir drengi í vanda

Fór í hart vegna áforma um meðferðarheimili fyrir drengi í vanda
Fréttir
Í gær

Nýtt framboð í Grímsnes- og Grafningshreppi – Andrés Bertelsen í oddvitasætinu

Nýtt framboð í Grímsnes- og Grafningshreppi – Andrés Bertelsen í oddvitasætinu
Fréttir
Í gær

Fær á baukinn fyrir að kvarta undan verðlagi á Íslandi

Fær á baukinn fyrir að kvarta undan verðlagi á Íslandi
Fréttir
Í gær

Brá sér í mátunarklefa á Tenerife og varð milljón ríkari

Brá sér í mátunarklefa á Tenerife og varð milljón ríkari