fbpx
Föstudagur 13.febrúar 2026
Fréttir

Andlátið í Vestmannaeyjum – Dómari hafnar gæsluvarðhaldskröfu og starfsmönnunum sleppt

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 3. febrúar 2026 17:05

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Héraðsdómur Suðurlands hafnaði kröfu Lögreglunnar á Suðurlandi um gæsluvarðhald yfir starfsmönnum hjúkrunarheimilisins Hraunbúða í Vestmannaeyjum. Frá þessu greinir Vísir. Lögreglan á Suðurlandi ætlar að kæra niðurstöðuna til Landsréttar.

Um er að ræða tvær konur sem starfa á hjúkrunarheimilinu en lögregla rannsakar nú andlát konu á tíræðisaldri sem lést á hjúkrunarheimilinu í síðustu viku.

Vísir hefur það eftir heimildum að konan hafi látið lífið í síðustu viku eftir að hafa þegið líknandi meðferð á hjúkrunarheimilinu um nokkurt skeið. Rannsókn málsins hófst á laugardag en á sunnudag óskaði ríkissaksóknari eftir því að Lögreglan á Suðurlandi tæki yfir rannsóknina vegna tengsla lögreglumanns í Vestmannaeyjum við hina látnu. Fjölskyldu konunnar grunaði ekki að andlátið hefði borið að með saknæmum hætti fyrr en lögreglan hafði samband um helgina en nú stendur til að kryfja hina látnu.

Samkvæmt mbl.is beinist rannsókn lögreglu að því hvort lyfjagjöf hafi leitt til andlátsins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fer úr FH í Hauka
Fréttir
Í gær

Fór í hart vegna áforma um meðferðarheimili fyrir drengi í vanda

Fór í hart vegna áforma um meðferðarheimili fyrir drengi í vanda
Fréttir
Í gær

Nýtt framboð í Grímsnes- og Grafningshreppi – Andrés Bertelsen í oddvitasætinu

Nýtt framboð í Grímsnes- og Grafningshreppi – Andrés Bertelsen í oddvitasætinu
Fréttir
Í gær

Fær á baukinn fyrir að kvarta undan verðlagi á Íslandi

Fær á baukinn fyrir að kvarta undan verðlagi á Íslandi
Fréttir
Í gær

Brá sér í mátunarklefa á Tenerife og varð milljón ríkari

Brá sér í mátunarklefa á Tenerife og varð milljón ríkari