fbpx
Föstudagur 06.mars 2026
Fréttir

Lögreglukona ákærð og sökuð um að misnota aðstöðu sína

Ágúst Borgþór Sverrisson
Mánudaginn 2. febrúar 2026 11:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Héraðssaksóknari hefur ákært lögreglukonu á höfuðborgarsvæðinu fyrir brot í opinberu starfi, sem lögreglumaður hjá embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu.

Meint brot felast í því að hafa þann 19. mars árið 2024 ítrekað flett upp málum í lögreglukerfinu (LÖKE) tengdum manni sem hún átti í samskiptum við vegna atvika sem vörðuðu nákominn vandamann lögreglukonunnar. Einnig hafi hún flett upp málum tengdum barnsmóður mannsins.

Samtals er hún sögð hafa flett upp sex málum um parið og skoðað 23 bókanir.

Í ákærunni segir að uppflettingarnar hafi ekki tengst störfum lögreglukonunnar og með þeim hafi hún misnotað sér stöðu sína og þannig hallað á réttindi parsins.

Aðalmeðferð í málinu verður við Héraðsdóm Reykjaness þann 19. febrúar næstkomandi. Af ókunnum ástæðum eru réttarhöld í málinu fyrir luktum dyrum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Barnaheill hefja neyðarsöfnun fyrir börn í Mið-Austurlöndum

Barnaheill hefja neyðarsöfnun fyrir börn í Mið-Austurlöndum
Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Opnar dyr að bernskuminningum Elísabetar

Opnar dyr að bernskuminningum Elísabetar
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Einar tekur við af Birni sem ritstjóri DV – Ari ráðinn aðstoðarritstjóri

Einar tekur við af Birni sem ritstjóri DV – Ari ráðinn aðstoðarritstjóri
Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Haukur lýsir áhyggjum sínum: „Enginn einn atburður myndi kosta þjóðina meira“

Haukur lýsir áhyggjum sínum: „Enginn einn atburður myndi kosta þjóðina meira“