fbpx
Mánudagur 02.júní 2025
Fréttir

Dagur blandar sér í pólsku forsetakosningarnar – „Sterka framtíð fyrir Pólland“

Ritstjórn DV
Laugardaginn 31. maí 2025 12:00

Dagur B. Eggertsson.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á morgun fer fram seinni umferð forsetaskosninganna í Póllandi og búist er við að mjótt verði á mununum. Kosið er milli þeirra tveggja frambjóðenda sem urðu efstir í fyrri umferðinni. Meðal þeirra sem hafa ekki kosningarétt en taka opinbera afstöðu til kosninganna er Dagur B. Eggertsson þingmaður Samfylkingarinnar og fyrrum borgarstjóri í Reykjavík en hann hvetur þá Pólverja sem búa á Íslandi og eiga atkvæðisrétt til að kjósa annan frambjóðandann, Rafal Trzaskowski borgarstjóra í Varsjá höfuðborg Póllands.

Kosningunum hefur verið stillt upp sem baráttu frjálslyndis og íhaldssemi. Rafal Trzaskowski er fulltrúi frjálslyndisins og nýtur stuðnings ríkisstjórnar Donald Tusk forsætisráðherra. Eins og Tusk er Trzaskowski hallur undir Evrópusamstarfið á vettvangi ESB. Mótframbjóðandi hans er hinn íhaldssami Karol Nawrocki, sem nýtur stuðnings hins þjóðernissinnaða stjórnarandstöðuflokks Laga og réttlætis. Nawrocki leggur áherslu á fullveldi Póllands og hefðbundin gildi og Donald Trump Bandaríkjaforseti bauð honum í Hvíta húsið. Nawrocki hefur lýst sömuleiðis yfir efasemdum um stuðning við Úkraínu.

Forsetinn í Póllandi hefur nokkur völd. Hann fer til að mynda með framkvæmdavaldið ásamt ríkisstjórninni, getur við vissar aðstæður rofið þing og hefur neitunarvald gagnvart lögum sem samþykkt eru á þingi.

Þekkst lengi

Dagur fjallar um kosningarnar í nýrri Facebook-færslu og gerir þar grein fyrir kynnum sínum af Rafal Trzaskowski sem hefur verið borgarstjóri í Varsjá síðan 2018:

„Ég hef þekkt Rafal í tíu ár. Hittumst fyrst þegar hann var nýkjörinn, og reyndar ekki tekinn formlega við, en árásirnar á hann frá óbilgjörnum andstæðingum voru þegar hafnar. Þennan framtíðarmann og talsmann lýðræðis, mannréttinda, evrópskrar samvinnu og réttar kvenna yfir líkama aínum skyldi stöðva. Það tókst ekki og Rafal er á sínu þriðja kjörtímabili.“

Ljóst er að Degi þykir mikið til Trzaskowski koma:

„Það small eitthvað strax í samskiptum okkar og við höfum verið vinir lengi. Rafal er ótrúlega opinn og hlýr, mikill húmoristi með gríðarlega reynslu og yfirsýn. Hann talar fleiri tungumál en nokkur sem ég hef kynnst í pólitík: þýsku, frönsku, ítölsku, spænsku, rússnesku og auðvitað pólsku og ensku. Hann getur gert sig skiljanlegan við svo til allar þjóðir í Austur-Evrópu eða svo hefur mér sýnst, algjörlega magnaður.“

Kosningabaráttan og erlendis

Dagur hefur greinilega fylgst vel með kosningabaráttunni í Póllandi:

„Rafal hefur lagt sig mikið fram um að kynna og virkja ungt fólk til þátttöku í pólitík. Það skilaði sér í síðustu þingkosningum þegar ungt fólk flyktist á kjörstað til að kjósa lýðræðisflokkana. Nú skiptir miklu máli að það endurtaki sig. Rafal er sterkur í borgunum en hefur verið í linnulausri kosningabaráttu um land allt til að vinna fylgi í dreifbýli og þorpum einnig. Ég hef reynt að fylgjast með og Prins polo og Íslandstengingin kom meðal annars við sögu. Á endasprettinum hefur Gosia kona hans verið miklu meira áberandi en áður og það er styrkur. Hún verður frábær forsetafrú.“

Dagur segir ljóst að atkvæði þeirra Pólverja sem búi erlendis geti skipt sköpum í ljósi þess að kannanir benda til að afar mjótt geti orðið á mununum. Hann er því með skilaboð til þeirra Pólverja sem búa á Íslandi og hafa atkvæðisrétt:

„Á dögunum sigraði borgarstjóri Búkarest í Rúmeníu forsetakosningar gegn pópúlískum talsmanni Rússa. Þar réðu atkvæði Rúmena utan landsteinana úrslitum. Örfá atkvæði geta ráðið úrslitum á morgun. Á Íslandi eiga 22.000 Pólverjar atkvæðisrétt sem ég vona að þeir nýti og kjósi Rafal og sterka framtíð fyrir Pólland.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt