fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Fréttir

Bílskýlismálið hafi valdið Helgu og Theodór miklu hugarangri – Segja Reykjavíkurborg ganga fram af mikilli hörku

Kristinn H. Guðnason
Fimmtudaginn 6. mars 2025 18:30

Mikil hækkun er á lóðinni sem veldur slysahættu við bílageymsluna.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Helga Þórisdóttir, forsetaframbjóðandi og forstjóri Persónuverndar, og eiginmaður hennar, Theodór Jóhannsson, telja Reykjavíkurborg hafa gengið fram af mikilli hörku gagnvart þeim vegna bílskýlis sem þau segja reist í góðri trú. Jafn framt að málið hafi valdið þeim miklu hugarangri.

Þetta kemur fram í kæru hjónanna sem tekin var fyrir hjá umhverfis og skipulagsráði borgarinnar í gær, miðvikudag.

Eins og DV greindi frá um helgina þá krefst Reykjavíkurborg að hjónin, sem búa í Grundarlandi í Fossvogi, rífi bílskýli sem reist var án leyfis borgaryfirvalda. Bifreiðageymslupláss á lóðinni sé þegar fullnýtt. Lagðar voru á dagsektir, 25 þúsund krónur á dag, sem hjónin fengu hnekkt á meðan málið er í kæruferli hjá Úrskurðarnefnd umhverfis og auðlindamála.

Hjónin kærðu ákvörðun um að leggja á dagsektir og um fyrirskipun byggingarfulltrúa um að bílskýlið, sem þau reistur árið 2021, verði rifið.

Slysahætta vegna hækkunar

Rekja þau ástæðuna fyrir því að þau hafi reist bílskýlið á sínum tíma. Það er að lóðin sé sérstök að því leiti að á henni sé mikil upphækkun. Keyra hafi þurft upp á 110 sentimetra háan og 4,5 metra langan ramp til að komast inn í bílskúrinn. Þessi rampur hafi verið umtalaður í hverfinu. Vegna slysahættu, hvað varðar hálku og snjó og vegna hæðarmunar, ákváðu Helga og Theodór að loka fyrir aðgengi að bílskúrnum. Hann hafi verið ónothæfur sem bílageymsla við þessar aðstæður.

Árið 2020 upplýstu þau nágranna sína um að þau hygðust reisa bílskýlið og var það samþykkt athugasemdalaust. Var bílskýlið svo reist í apríl og maí árið 2021.

„Bílskýlið settu kærendur því upp í góðri trú um að allt væri í lagi. Fyrir byggingu þess fengu kærendur samþykki allra nágranna í botnlanganum, skýlið er ekki fyrir neinum og fellur vel að næsta umhverfi,“ segir í kærunni.

Fengu tvo daga

Kvarta hjónin yfir samskiptum við Reykjavíkurborg í kærunni. Þau hafi til að mynda afhent bréf frá byggingarfulltrúa um að rífa bílskýlið innan 90 daga, ellegar yrðu lagðar á dagsektir. En aðeins tveir dagar voru eftir af andmælarétti þegar þau fengu bréfið í hendur.

Sjá einnig:

Forsetaframbjóðanda skipað að rífa bílskýli sem reist var í leyfisleysi – Slagur um dagsektir við borgina

Hafi þau leitað leiðbeininga frá borginni hvað hægt væri að gera í þessari stöðu til að skýra betur mál sitt. Töldu þau málið ekki nægilega rannsakað eða rökstutt af hálfu borgarinnar.

Á fundi með skipulags og byggingarfulltrúum Reykjavíkur hafi hjónin ítrekað sérstöðu lóðarinnar og afhent myndir. Fengu þau þau skilaboð að málið yrði kannað með sérfræðingum. En eftir það fengu þau bréf um að ekki yrði fallið frá ákvörðuninni, án þess að frekari rökstuðningur fylgdi erindinu.

Hugarangur og harka

Telja þau að ákvörðun borgarinnar brjóti bæði rannsóknarreglu, jafnræðisreglu og meðalhófsreglu stjórnsýslulaga og þeim hafi ekki verið veittur andmælaréttur.

„Mál þetta hefur valdið kærendum miklu hugarangri,“ segir í kærunni og ítrekað er að bílskýlið hafi verið reist í góðri trú og að málefnalegum málsástæðum hafi verið komið á framfæri en ekki hlustað á þær. „Framganga Reykjavíkurborgar, eftir að hafa fengið útskýringar um ástæður þess að bílskýlið var reist, hefur einkennst af mikilli hörku. Þar með telja kærendur að reglur stjórnsýsluréttar hafi verið brotnar af borginni við meðferð málsins, þá sérstaklega jafnræðisregla hennar og regla um meðalhóf, þar sem mjög íþyngjandi kröfur eru settar á kærendur en ekki á aðra íbúa í hverfinu.“

Vegna hækkunarinnar sé ómögulegt að lóðin geti fallið að gildandi skipulagi. Óskað er eftir því að löglegt leyfi fáist fyrir bílskýlið. Einnig séu kærendur tilbúnir að fjarlægja 5 fermetra kalda reiðhjólageymslu við enda skýlisins ef það breytir niðurstöðu málsins.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Krefst svara um hvort mannréttindi séu brotin í almannatryggingakerfinu

Krefst svara um hvort mannréttindi séu brotin í almannatryggingakerfinu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Málverkum stolið af sýningu í Bolholti um hábjartan dag

Málverkum stolið af sýningu í Bolholti um hábjartan dag
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Davíð segir aðeins tímaspursmál þangað til annað ungmenni láti lífið: „Við þurfum að vakna og það núna“

Davíð segir aðeins tímaspursmál þangað til annað ungmenni láti lífið: „Við þurfum að vakna og það núna“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Vendingar í deilu Bríetar og Pálma – Frávísun vegna verulegra ágalla

Vendingar í deilu Bríetar og Pálma – Frávísun vegna verulegra ágalla
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Gagnrýnir gagnrýni Snorra – „Gerið betur en gervigreind kæra stjórnarandstaða. Lygarnar eru allar ykkar megin“

Gagnrýnir gagnrýni Snorra – „Gerið betur en gervigreind kæra stjórnarandstaða. Lygarnar eru allar ykkar megin“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Áslaug Arna fær stuðning og gagnrýni eftir umfjöllun um laun hennar – „Hjóla af hörku og hatri gegn konum“ – „Sjúga spena ríkisins“

Áslaug Arna fær stuðning og gagnrýni eftir umfjöllun um laun hennar – „Hjóla af hörku og hatri gegn konum“ – „Sjúga spena ríkisins“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Kvartaði vegna trúnaðarbrests í sveitarstjórn

Kvartaði vegna trúnaðarbrests í sveitarstjórn