

Maður hefur verið sakfelldur í Héraðsdómi Reykjaness fyrir stórtækan þjófnað og einnig brot á vopnalögum en töluvert magn af vopnum var í vörslu mannsins og voru þau að hluta til gerð upptæk.
Maðurinn var ákærður fyrir að hafa brotist inn í bílakjallara í nýbyggingu og stolið þaðan miklu magni verkfæra en áætlað verðmæti þeirra var rétt yfir 3 milljónir króna. Það dýrasta var svokölluð snittvél en áætlað verðmæti hennar var 1,1 milljón króna.
Hann var sömuleiðis ákærður fyrir vopnalagabrot með því að í fyrsta lagi hafa í vörslu sinni ferns konar óskráð vopn og íhluti í vopn og þar með án leyfis lögreglustjóra. Þetta voru riffill með boltalás, láshús og skefti af rifli, framhlaðningur, og haglabyssa með pumpulás. Í öðru lagi var maðurinn ákærður fyrir að hafa í vörslu sinni skotvopn og íhluti í þau án þess að hafa endurnýjað skotvopnaleyfi sitt. Þetta voru fjórar haglabyssur, tveir rifflar þar af annar með boltalás og loks hljóðdeyfir.
Loks var maðurinn ákærður fyrir vopnalagabrot með því að hafa i vörslu sinni teygjubyssu, gaddakylfu, sverð, sverð með göddum, fjórar axir, tvær sveðjur, spjót, tvo hnífa og útdraganlega kylfu.
Sömuleiðis var maðurinn ákærður fyrir brot á fíkniefnalögum og fleiri brot á vopnalögum en fallið var frá þeim ákæruliðum.
Maðurinn játaði þjófnaðinn og að hafa haft vopnin í sinni vörslu en taldi ekki um brot á vopnalögum að ræða og lagði fram endurnýjað skotvopnaleyfi.
Vopnin fundust við húsleit á heimili mannsins í mars 2024. Við skýrslutöku hjá lögreglu sagði hann skotvopnin sem þá höfðu verið haldlögð hafa verið keypt á eðlilegan máta og verið skráð. Hann kvaðst ekki muna hvort riffill frá afa hans væri skráður á hann og hvort ein byssan væri skráð á frænda hans. Allt hefði verið læst inni í bílskúr fyrir utan teygjubyssu og skrautbyssu sem hafi hangið uppi á vegg. Haglaskot hefðu verið í tösku uppi í hillu og hún átt að vera læst.
Aðspurður hvort hann hefði verið meðvitaður um útrunnið skotvopnaleyfi játti hann því og sagði að það væri örugglega umsókn í kerfinu. Hann væri sömuleiðis meðvitaður um að hann mætti ekki geyma vopn og annað með útrunnið skotvopnaleyfi en hann hefði verið búinn að reyna að sækja um endurnýjun á netinu en ekki tekist það. Hann hafi verið búinn að gera það að minnsta kosti þrisvar. Aðspurður um hnífana og axirnar sagði maðurinn að hann hefði búið þetta til sjálfur og notað ýmist sem skraut eða í garðvinnu. Allt hafi verið læst úti í bílskúr og þannig gengið frá að enginn myndi slasast. Hann neitaði því að vita nokkuð um öxi sem fannst í sófa í íbúðinni. Einhverjir hlutir hefðu verið víraðir upp á vegg.
Fyrir dómi var framburður mannsins eilítið öðruvísi. Hann sagði að skotvopnaleyfi sitt hafi verið útrunnið og að hann hefði ekki hugsað út í það. Þá sagði hann að skotvopnin hefðu verið geymd í læstum skáp í bílskúr. Hann sagðist ekki muna hvenær hann hefði endurnýjað skotvopnaleyfi sitt, en það gæti verið fyrir um ári síðan. Þá sagðist maðurinn ekki hafa gert sér grein fyrir því að munir þeir sem tilteknir voru í þriðja lið ákærunnar hafi falið í sér brot á vopnalögum. Um hafi verið að ræða skrautmuni sem hann hafi smíðað og hafi verið festir upp á vegg.
Í niðurstöðu Héraðsdóms Reykjaness segir að maðurinn hafi lagt fram skjal um að hann hafi skotvopnaleyfi sem gildi til 9. október 2029, upphaflega útgefið í september 2000. Samkvæmt upplýsingum ákæruvaldsins hafi leyfið runnið út í október 2021 en maðurinn sótt um endunýjun leyfisins í október 2024 og það verið samþykkt degi síðar.
Dómurinn segir að þau skotvopn og íhlutir í slík vopn sem talin séu upp í öðrum lið ákærunnar séu leyfisskyld og þar sem skotvopnaleyfi mannsins hafi verið útrunnið þegar lögreglan fann vopnin á heimili hans, í apríl 2024, verði að sakfella hann fyrir að brjóta vopnalög.
Þegar kemur að þriðja lið ákærunnar; sverðunum, spjótunum, hnífunum o.s.frv., segir í dómnum að samkvæmt vopnalögum sé óheimilt að framleiða slík vopn eða hafa þau í vörslu sinni án sérstaks leyfis lögreglustjóra. Maðurinn hafi ekki aflað slíks leyfis og það breyti engu þótt vopnin hafi hangið upp á vegg og að maðurinn hafi ekki gert sér grein fyrir að með þessu væri hann að brjóta vopnalög. Sakfella verði hann af þessum ákærulið.
Þegar kemur að refsingu segir í dómnum að það sé metið manninum til refsilækkunar að hann hafi játað þjófnaðinn á verkfærunum og að hafa verið með vopnin í sinni vörslu. Á móti komi að verðmæti verkfæranna hafi verið mikið. Því þótti við hæfi að dæma hann í 75 daga skilorðsbundið fangelsi.
Þegar kemur að kröfu ákæruvaldsins um að öll vopnin yrðu gerð upptæk fellst dómurinn á að öll vopnin í þriðja lið verði gerð upptæk. Hvað varðar skotvopnin segir dómurinn ekki hægt að líta framhjá því að maðurinn hefði fengið heimild fyrir þeim flestum en skotvopnaleyfið runnið út á árinu 2021. Það hafi síðan verið endurnýjað í október 2024. Við aðalmeðferð málsins hafi komið fram hjá saksóknara að maðurinn hefði fengið endurnýjað leyfi fyrir mistök. Það breyti ekki því að maðurinn hafi gilt leyfi fyrir þeim skotvopnum um sem krafist sé upptöku á að undanskildum þeim fjórum vopnum og íhlutum sem voru óskráð, riffli með boltalás, láshúsi og skefti af rifli, framhlaðningi, og haglabyssu með pumpulás. Þetta fernt var því gert upptækt en ekki það sem eftir stóð af skotvopnunum; fjórar haglabyssur, tveir rifflar þar af annar með boltalás og loks hljóðdeyfir.