Fréttir

Uppsagnir á ritstjórn Morgunblaðsins

Mynd

Þremur blaðamönnum Morgunblaðsins og mbl.is var sagt upp störfum fyrir helgi.

Greint er frá þessu á vef

RÚV

þar sem Haraldur Johannessen, ritstjóri og framkvæmdastjóri Morgunblaðsins, staðfestir uppsagnirnar.

Í frétt RÚV kemur fram að í hópi þessara þriggja starfsmanna hafi einn verið aldarfjórðungsreynslu. Herma heimildir miðilsins að einum blaðamanni á fréttadeild hafi verið sagt upp, einum á Smartlandi og einum á íþróttadeild.