fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Fréttir

Salmonella á kúabúi í Eyjafirði

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 11. júní 2025 10:30

Kú á beit í íslenskum haga. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Mynd: Christian Bickel - CC BY-SA 2.0 de, https://commons.wikimedia.org/w/index.php?curid=581931

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Matvælastofnun hefur tilkynnt að salmonella hafi greinst á kúabúi í Eyjafirði.

Um er að ræða bæinn Fellshlíð en í tilkynningunni kemur fram að salmonella greindist í sýnum sem tekin voru í síðustu viku á búinu. Ástæða sýnatökunnar hafi verið sú að einstaklingur sem tengist búinu hafi greinst með salmonellusýkingu og á búinu hafi einnig verið naugripir með sjúkdómseinkenni, m.a. blóðuga skitu.

Segist stofnunin hafa gefið fyrirmæli um ýmsar ráðstafanir til að hindra smitdreifingu frá búinu. Þær feli m.a. í sér að bannað sé að flytja lifandi dýr út af búinu án leyfis héraðsdýralæknis, þjónustuaðilar skuli klæðast einnota hlífðarfatnaði eða fatnaði búsins, fóðurbíll og mjólkurbíll skuli fara á búið í lok dags, nautgripir skuli aðeins sendir til slátrunar að undangenginni sýnatöku og neikvæðri niðurstöðu rannsóknar, búfjáráburð megi aðeins nota að uppfylltum ákveðnum skilyrðum og hræjum skuli fargað með öruggum hætti.

Óhætt að drekka

Sérstaklega er tekið fram í tilkynningunni að engin hætta stafi af neyslu mjólkur frá búinu eftir gerilsneyðingu.

Matvælastofnun segir að ekki sé vitað hvernig smitið hafi borist inn á búið en unnið sé að öflun upplýsinga. Í undirbúningi séu nánari sýnatökur og rannsóknir til að kortleggja umfang smitsins og mögulegar smitleiðir.

Bændur í nágrenni búsins eru í tilkynningunni beðnir um að hafa strax samband við dýralækni eða Matvælastofnun ef þeir verða varir við sjúkdómseinkenni í nautgripum sem geti bent til salmonellusýkingar. Algengustu einkenni séu minni átlyst, fall í nyt, hiti og niðurgangur sem oft sé illa lyktandi og blóðugur.

Sjaldgæft

Loks segir í tilkynningu Matvælastofnunar að bændum á búinu verði leiðbeint um þrif og sótthreinsun. Búið verði síðan undir eftirliti stofnunarinnar og sýni verði tekin reglubundið næstu mánuði eða þar til öruggt geti talist að smitið hafi verið upprætt.

Stofnunin tekur sérstaklega fram að Salmonella hafi mjög sjaldan greinst í nautgripum hér á landi. Það sé til mikils að vinna að koma í veg fyrir salmonellusýkingar því mjög vandasamt og tímafrekt geti verið að útrýma smitinu

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Krefst svara um hvort mannréttindi séu brotin í almannatryggingakerfinu

Krefst svara um hvort mannréttindi séu brotin í almannatryggingakerfinu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Málverkum stolið af sýningu í Bolholti um hábjartan dag

Málverkum stolið af sýningu í Bolholti um hábjartan dag
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Davíð segir aðeins tímaspursmál þangað til annað ungmenni láti lífið: „Við þurfum að vakna og það núna“

Davíð segir aðeins tímaspursmál þangað til annað ungmenni láti lífið: „Við þurfum að vakna og það núna“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Vendingar í deilu Bríetar og Pálma – Frávísun vegna verulegra ágalla

Vendingar í deilu Bríetar og Pálma – Frávísun vegna verulegra ágalla
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Gagnrýnir gagnrýni Snorra – „Gerið betur en gervigreind kæra stjórnarandstaða. Lygarnar eru allar ykkar megin“

Gagnrýnir gagnrýni Snorra – „Gerið betur en gervigreind kæra stjórnarandstaða. Lygarnar eru allar ykkar megin“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Áslaug Arna fær stuðning og gagnrýni eftir umfjöllun um laun hennar – „Hjóla af hörku og hatri gegn konum“ – „Sjúga spena ríkisins“

Áslaug Arna fær stuðning og gagnrýni eftir umfjöllun um laun hennar – „Hjóla af hörku og hatri gegn konum“ – „Sjúga spena ríkisins“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Kvartaði vegna trúnaðarbrests í sveitarstjórn

Kvartaði vegna trúnaðarbrests í sveitarstjórn