Í skeyti sem lögregla birti á Facebook-síðu sinni kemur fram að tilkynnandi hafi ekki gert sér grein fyrir því hvaðan blysunum var skotið á loft. Engu að síður var strax hafin eftirgrennslan og þegar hún bar ekki árangur var áhöfn björgunarskipsins Gísla Jóns kölluð út.
Að sögn lögreglu var óttast að sjófarandi, til dæmis kajakræðari eða fjallgöngufólk væri í neyð. Bendir lögregla á að blys sem þessi séu jafnan um borð í skipum og bátum og þá hafi margt útivistarfólk slík bjargráð í fórum sínum.
Viðbragð áhafnarinnar var afturkallað rétt fyrir miðnætti á laugardagskvöld þar sem fréttir bárust um að blysin hefðu komið frá hópi fólks sem komið hafði saman vegna hátíðarhalda fyrir utan veitingastað á Skutulsfjarðareyri.
„Eins og nafn blysanna gefur til kynna er hér um verkfæri að ræða sem einungis á að nota í neyð, til að óska eftir skjótri aðstoð viðbragðsaðila. Almenn notkun er að sjálfsögðu bönnuð enda þekkjum við flest söguna „Úlfur, úlfur.“ Viðbragðsaðilar hafa ávallt tekið mjög alvarlega þegar neyðarblys eru tendruð eða þeim skotið á loft.“