fbpx
Laugardagur 27.júlí 2024
Fréttir

Eiður vildi vaða í seðlum og vinna ekki neitt – „Þú getur synt í seðlum, sullað í kampavíni og kavíar og fengið frítt í sund að auki“

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 11. júní 2024 14:30

Mynd: Unsplash.com

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Allt frá blautu barnsbeini vissi ég nákvæmlega hvert ég vildi stefna í lífinu, ég vildi vaða í seðlum án þess að vinna neitt og vera laus við allt vesen og stress. Ég áttaði mig aldrei á af hverju fólk væri að leggja á sig að fara í nám til að læra einhverja iðn eða stefna á háskólanám, bæði með tilheyrandi kostnaði og álagi. Nei, ég ætlaði sko ekki að strita og púla að óþörfu. Ég ákvað að redda mér örorkumati og lifa ljúfa lífinu án þess að lyfta fingri,“

segir Eiður Welding formaður ungÖBÍ í pistli á Vísi. 

Segir hann að það sé nú meira ruglið að fólk striti allt sitt líf eins og hamstur á hjól. „Þú þarft ekki að hafa áhyggjur af því lengur því í þessari grein fer ég yfir hvernig þú getur synt í seðlum, sullað í kampavíni og kavíar og fengið frítt í sund að auki. Hugsaðu þér snilldina í því að fá lækni til þess að skrifa upp á þú sért „fatlafól“ til lífstíðar, fyllir út spurningalista og umsókn og það er bingó á borði sjö! Nú getur veislan hafist.“

Berðu þig ömurlega hvert sem þú ferð

Eiður segir að þessu langa ferli sé lokið þá sé um að gera að hlamma sér í sófann og horfa á Glæstar vonir. „Það er þó eitt sem ber að varast, það er mikilvægt að bera sig illa hvert sem þú ferð svo fólk haldi nú ekki að þú sért að svindla á okkar góða kerfi. Allt er ömurlegt hjá þér, alltaf, engin von og ekkert er fram undan en svo kveður þú og gengur hlæjandi í bankann.

Það heldur betur gott framundan hjá þér en gættu þess að gera ekkert skemmtilegt og vertu bara helst heima hjá þér því þú hefur hvort sem er ekki efni á neinu öðru á strípuðum örorkulífeyri. Já, gott er það og full ástæða til þess að væla sig inn í þessa paradís strax í dag.“

Eiður Welding

Fjöldi örorkulífeyristaka og bótasvik

Eiður bendir á að þingmaður Sjálfstæðisflokksins hafi lagt fram fyrirspurn á Alþingi um fjölda örorkulífeyristaka og bótasvik. Í fyrirspurninni er meðal annars óskað eftir upplýsingum um hvaða rannsóknir og niðurstöður liggja fyrir um umfang bótasvika sem felast í því að einstaklingar eru metnir öryrkjar án þess að gildar ástæður liggi þar að baki. Segir Eiður að nú reyni á lesendur hvort þeir hafi það sem til þarf til að komast í VIP klúbbinn. 

„Þegar smásjá öryrkjaeftirlitsins er dregin fram er vænlegast að vanda vel til verka 24 tíma sólarhrings, sjö daga vikunnar. Núna er rétti tíminn til að dusta rykið af spelkunum, burðast með öndunarkút um götur og torg og segja öllum að þú sért geðveikur út af inngöngu Íslands í NATO líkt og Ingvar E. Sigurðsson gerði svo listilega í kvikmyndinni Englar alheimsins.“

Óþekktur hlutur á pokasvæði

Þegar hér er komið ætti flestum að vera ljóst að ekki er allt sem sýnist, enda segist Eiður verða að hryggja lesendur með því að hann hefur sagt þeim ósatt hingað til.

„Sannleikurinn er sá að það er enginn kavíar né kampavín í paradís örorkukerfisins en þar má þó finna kranavatn og oft tómlegan bónuspoka. Ef þú átt ekki íbúð áður en þú færð örorkumat og ert án ríkra ættingja sem eru tilbúnir til að hlaupa undir bagga getur þú gleymt hugmyndinni um að eignast eigið húsnæði með tilheyrandi öryggi, enda ómögulegt að fá greiðslumat með örorkulífeyri auk þess sem hlutdeildarlán virka illa fyrir fatlað fólk,“segir Eiður.

Hann segir kerfið halda þétt utan um fjárhagsupplýsingar þeirra sem treysta á þetta mikilvæga öryggisnet og mörg dæmi eru um að örorkulífeyristakar lendi í skuld við Tryggingastofnun (TR) þegar loksins birtir til, til dæmis þegar fólk fær óvænt afturvirka eingreiðslu frá sínum lífeyrissjóði. Það sé ekki einfalt ferli heldur að fá örorkumat.

„Fatlað fólk er fjölbreyttur hópur fólks og tegund fötlunar getur verið af ýmsum toga. Sumt fólk fæðist fatlað en aðrir fatlast síðar á lífsleiðinni. Fyrir seinni hópinn bíður langt endurhæfingarferli sem því miður skilar ekki alltaf árangri. Það er þó ekki nóg að sérfræðilæknar og annað fagfólk sem vinnur að endurhæfingu viðkomandi telji að hún sé fullreynd heldur þarf sá hinn sami að standast mat skoðunarlæknis og tryggingalæknis á vegum TR. Það er ekki auðvelt að komast í gegnum sigtið og dæmi eru um að einstaklingar fái ítrekað þá niðurstöðu að endurhæfing sé ekki fullreynd þrátt fyrir að allt sem stendur til boða skili ekki árangri. Þau ykkar sem kannast við sjálfsafgreiðslukassa sem gargar „óþekktur hlutur á pokasvæði!” þrátt fyrir að allt hafi verið stimplað inn, getið ímyndað ykkur að vera föst fyrir framan kassann árum saman, hlustandi á sama svarið auk langvarandi framfærslu óöryggis fyrir ykkur og ykkar fjölskyldu,“segir Eiður.

Panama norðursins?

Eiður spyr því hvort að það sé „virkilega góð ástæða að leggja á sig allt þetta umstang fyrir greiðslur undir lágmarkslaunum og sundkort til þess eins að vera umsvifalaust hafnað af skoðunar- og tryggingarlæknum TR? Meira að segja fólk með flóknar fatlanir á erfitt með að komast í gegnum nálarauga TR.“ 

Hann segir einnig að algenga spurningin: „Og hvað gerir þú?” valdi mörgum örorkulífeyristökum kvíða enda leynist fordómar víða gagnvart þeim sem geta ekki tekið þátt á vinnumarkaði. Hluti af þeim fordómum sé tilkominn vegna fáfræði um líf og aðstæður fatlaðs fólks, „jafnvel svo að fólk telur okkur vera letingja sem nenni ekki að vinna.“ 

„Það er flókið að eiga pening á Íslandi“ svo vitnað sé í núverandi fjármálaráðherra, en TR er ekki Panama norðursins. sem gerir letingjum kleift að lifa hinu ljúfa lífi á kostnað skattgreiðenda. Við þurfum að færa umræðuna á hærra plan, setja okkur í spor hvers annars, vinna gegn fordómum og stuðla að inngildingu allra inn í íslenskt samfélag.“

Lesa má pistilinn í heild sinni hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt