fbpx
Föstudagur 26.júlí 2024
Fréttir

Tímamót í íslensku skólastarfi – Miðstöð menntunar og skólaþjónustu tekur til starfa

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 2. apríl 2024 15:54

Þórdís Jóna Sigurðardóttir, forstjóri Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í dag tekur til starfa Miðstöð menntunar og skólaþjónustu en hún mun gegna lykilhlutverki í eflingu á menntakerfinu og innleiðingu á menntastefnu stjórnvalda. Þjónusta og stuðningur við skólasamfélagið í heild sinni eru meginviðfangsefni hinnar nýju miðstöðvar sem verður þekkingarmiðstöð og faglegur leiðtogi varðandi gæði menntunar og farsæld barna í skólum landsins. Þannig mun miðstöðin meðal annars styðja, efla og samhæfa menntun og skólaþjónustu um allt land, sjá nemendum fyrir vönduðu námsefni, þróa aðferðir til að meta stöðu og framvindu nemenda auk þess að byggja upp og viðhalda aðferðum og úrræðum fyrir skóla til að styðja við skólastarf, eins og segir í tilkynningu

Bakland skólastarfs á Íslandi

„Innleiðing menntastefnu er risastórt verkefni og það er alveg ljóst að skólasamfélagið þarf að hafa öflugt bakland. Þetta er verkefni allra sem að menntakerfinu koma,” segir Þórdís Jóna Sigurðardóttir, forstjóri Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu. „Okkar hlutverk í öllu þessu er að styðja við og þjónusta skólasamfélagið á allan þann hátt sem mögulegt er, til dæmis hvað varðar þekkingu, ráðgjöf, námsgögn og mat á stöðu, færni og framvindu nemenda. Við viljum vera bakland skólastarfs á Íslandi, stólpinn sem hægt verður að halla sér að,“ segir Þórdís Jóna og bætir því við að ábyrgðin sé mikil: „Það er mikill vilji hjá skólasamfélaginu að mæta hverju barni. Hvert barn er einstakt og öll eiga þau rétt á nálgun við sitt hæfi sem er það sem inngildandi nálgun í skólakerfinu snýst um. Til að kennarar og starfsfólk skóla geti fylgt þessu eftir þá þarf meiri stuðning, bæði til þess að matstæki séu viðeigandi og úrræði til að fylgja eftir niðurstöðum úr mati séu til staðar. Allt skólastarf hverfist um barnið og við trúum því að  að með auknum stuðningi, ráðgjöf og fjölbreyttari verkfærum þá getum við stutt betur við starfsfólk skóla við það mikilvæga verkefni að skapa umhverfi þar sem öll börn fá tækifæri til þess að njóta sín og blómstra.“

Bjartsýn á framtíðina

Á sama tíma og Miðstöð menntunar og skólaþjónustu hefur starfsemi lokast dyr Menntamálastofnunar sem lögð hefur verið niður. Mörg verkefna hennar flytjast yfir til Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu, eins og námsgagnaútgáfa og vinna við matsferil. Þá verður í fyrsta sinn á Íslandi til stofnun sem ætlað er að styðja við skólaþjónustu.  Áhersla verður lögð á miðlun gagnreyndra aðferða í skólastarfi í anda inngildandi menntunar þar sem virðing er borin fyrir fjölbreyttum þörfum og styrkleikum nemenda.

Þessi verkefni eru forsenda þess að hægt sé að mæta hverju barni þannig að það fái að njóta sín á eigin forsendum. Það á við hvort heldur börn þurfi meira krefjandi námsefni til að takast á við eða annarskonar stuðning. Önnur verkefni, eins og til dæmis alþjóðleg samstarfsverkefni flytjast í mennta- og barnamálaráðuneytið. Þórdís Jóna segir að nýja miðstöðin opni dyr sínar með bjartsýnina að vopni: „Við erum mjög spennt fyrir komandi verkefnum og hlökkum til að takast á við þau mikilvægu verkefni sem okkur hafa verið falin. Það eru fyrirmyndir að viðlíka stofnunum víðsvegar í hinum vestræna heimi, einingum sem þjónusta skólastarfið með því að nýta þekkingu og reynslu starfsfólks á breiðum grunni. Við ætlum að vera þessi aðili fyrir skólastarf á Íslandi og stuðla þannig að framúrskarandi menntun og farsæld barna og ungmenna um allt land.“

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Skemmdarverk unnin í nótt: Franska lestarkerfið lamað rétt áður en opnunarhátíð Ólympíuleikanna fer fram

Skemmdarverk unnin í nótt: Franska lestarkerfið lamað rétt áður en opnunarhátíð Ólympíuleikanna fer fram
Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Tilkynnt um ungan dreng með hníf við Hagkaup í Skeifunni

Tilkynnt um ungan dreng með hníf við Hagkaup í Skeifunni
Fréttir
Í gær

Guðmundur segir Ísland orðið of dýrt: „Þessi háa verðlagning er að koma í bakið á okkur núna“

Guðmundur segir Ísland orðið of dýrt: „Þessi háa verðlagning er að koma í bakið á okkur núna“
Fréttir
Í gær

Lögregla kölluð út vegna ágreinings um kött – Hver átti hann?

Lögregla kölluð út vegna ágreinings um kött – Hver átti hann?
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti hjólreiðamann sem féll fram af kletti við Jökulsárgljúfur

Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti hjólreiðamann sem féll fram af kletti við Jökulsárgljúfur
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fjársöfnun hafin til stuðnings fjölskyldu Sigurðar – Tvö fötluð börn hans þurfa mikla ummönnun

Fjársöfnun hafin til stuðnings fjölskyldu Sigurðar – Tvö fötluð börn hans þurfa mikla ummönnun