fbpx
Föstudagur 26.júlí 2024
Fréttir

Nýstárleg og litrík breyting hjá Bókasafni Kópavogs

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 1. apríl 2024 13:08

Mynd: Facebook

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bókasafn Kópavogs notaði páskahelgina og sérstaklega daginn í dag til að stokka upp uppröðun bóka safnsins eða eins og segir í færslu á Facebook-síðu safnsins:

„Tekin var sú ákvörðun af stjórnendum safnsins, eftir uppástungur frá lánþegum, að taka upp litakerfi í uppröðun bóka og hætta með Dewey flokkunarkerfið sem er og hefur verið ráðandi í vestrænum bókasöfnum til fjölda ára en kerfið er upphaflega frá árinu 1876. Dewey kerfið er tugakerfi og hefur verið álitið of flókið og illskiljanlegt fyrir lánþega sem vilja mikið frekar treysta á liti og titla bóka. Þeir lánþegar sem hafðir voru með í ráðum við ákvörðun á breytingunum höfðu allir orð á því að muna betur hvernig bók er á litinn frekar en um hvað hún væri, hver ritaði eða hvort hún væri skáldsaga, ævisaga, fræðsluefni eða eitthvað þaðan af flóknara.

Mynd: Facebook
Við á Bókasafni Kópavogs búum svo vel að forstöðumaðurinn okkar, Lísa Z. Valdimarsdóttir, er alþjóðlegur KonMari ráðgjafi og gat því vel skilið ástæðurnar á bak við uppástungur lánþega að leggja Dewey kerfið niður og tók mjög vel í að flokka bækur eftir litum enda, eins og Marie Kondo fræðin segja: „Það skiptir engu hve dásamlegir hlutirnir voru áður, við getum ekki lifað í fortíðinni. Gleðin og spenningurinn sem við finnum fyrir, hér og nú er svo miklu mikilvægari“. Dewey kerfið er komið til ára sinna, TikTok kynslóðin er að taka við og við vitum að hún flokkar bækur eftir litum.
Mynd: Facebook
Lísa tók starfsfólk í leiðsögn áður en breytingarnar sjálfar hófust þar sem Dewey kerfinu var þakkað fyrir allt sem það hefur gefið safninu og skipulagi þess um leið og það var kvatt, eins og KonMari fræðin kveða á um. Nú er kominn tími á nýtt skipulag með nýrri gleði og notendaupplifun. Að þessu sögðu erum við enn upplýsingafræðingar og leggjum mikið upp úr stafrófinu og góðu skipulagi, þess vegna fórum við ekki í það að raða eftir tónum innan litanna heldur eftir titlum bókanna innan hvers litar.
Við breytingarnar sjálfar sáum við hve ótrúlega margar af bókunum okkar eru rauðar og því var tekin ákvörðun um að allar rauðar bækur væru saman á Lindasafni. Aðra litlir regnbogans má finna á aðalsafni. Endilega hafið samband í síma 441 6800.
Verið hjartanlega velkomin á Bókasafn Kópavogs, nú litríkara sem aldrei fyrr!“
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fjársöfnun hafin til stuðnings fjölskyldu Sigurðar – Tvö fötluð börn hans þurfa mikla ummönnun

Fjársöfnun hafin til stuðnings fjölskyldu Sigurðar – Tvö fötluð börn hans þurfa mikla ummönnun
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Tveir ókunnugir menn voru skráðir á heimili hennar – Ekki þarf að fá samþykki eiganda eignarinnar

Tveir ókunnugir menn voru skráðir á heimili hennar – Ekki þarf að fá samþykki eiganda eignarinnar