fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Fréttir

Hald lagt á skammbyssur og vélbyssur við húsleit á höfuðborgarsvæðinu

Ritstjórn DV
Mánudaginn 18. mars 2024 11:58

Mynd: DV/Maggi gnúsari

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í tilkynningu frá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu kemur fram að mikið af skotvopnum, m.a. skammbyssur og vélbyssur, og íhlutum skotvopna, ásamt miklu magni af skotfærum var haldlagt við húsleit á höfuðborgarsvæðinu fyrir helgina. Megnið af þeim vopnum sem fundust við leitina séu í eigu húsráðanda enda skráð á hann í skotvopnaskrá. Þó sé ljóst að hluti vopnanna sé það ekki og viðkomandi vopn ekki skráð hérlendis. Auk þessa var haldlagt nokkuð af skotgeymum sem ekki séu löglegir til innflutnings hérlendis, hljóðdeyfar og fleira smálegt. Húsráðandinn sem um ræðir sé með skotvopnaleyfi og með leyfi fyrir öllum þeim flokkum skotvopna sem í boði eru hérlendis, þar með talið safnvopnum.

Í tilkynningunni segir að tilurð málsins sé sú að húsráðandi, sem sé íslenskur karlmaður, var handtekinn á flugvelli í Bandaríkjunum í síðustu viku. Hann var á leið sinni til Íslands, en í flugfarangri hans fundust skotvopn, íhlutir skotvopna og skotfæri. Ólöglegur útflutningur skotvopna og tengdra hluta sé litinn mjög alvarlegum augum vestanhafs og hafi maðurinn því setið í varðhaldi allt frá handtöku. Íslenska lögregla hafi í kjölfarið fengið greinargóða tilkynningu um málið frá bandarískum löggæsluyfirvöldum og í framhaldinu hafi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fengið húsleitarheimild á heimili mannsins.

Enn fremur segir í tilkynningunni að lögreglan hvetji alla þá sem hyggist flytja til landsins skotvopn, skotfæri eða tengda hluti að gera slíkt á löglegan hátt. Í öllum tilvikum þurfi að liggja fyrir innflutningsleyfi lögreglu áður en slíkt er flutt til Íslands og í mörgum tilvikum þurfi líka útflutningsleyfi frá brottfararlandinu. Vopnasmygl sé víða um heim lagt að jöfnu við skipulagða brota- eða hryðjuverkastarfsemi og viðurlög við slíku því jafnan mjög ströng.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Jóhann hlaut dóm í héraði – Leigði ólöglega brunagildru í Þverholti til búsetu og stofnaði lífum í hættu

Jóhann hlaut dóm í héraði – Leigði ólöglega brunagildru í Þverholti til búsetu og stofnaði lífum í hættu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Stjórnarflokkarnir eru að koma sér upp þægilegum merkimiðum þegar styttist í kosningar

Ólafur Þ. Harðarson: Stjórnarflokkarnir eru að koma sér upp þægilegum merkimiðum þegar styttist í kosningar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Næsta skref – byltingakenndar breytingar

Næsta skref – byltingakenndar breytingar