fbpx
Mánudagur 10.nóvember 2025
Fréttir

Heiðrún varar við nýrri tegund svika – Þetta máttu aldrei gera

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 3. október 2024 09:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Heiðrún Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu, segir að borið hafi á því að undanförnu að svikarar hringi í fólk og hafi af þeim fé með ýmis konar blekkingum.

Heiðrún skrifar athyglisverða grein á vef Vísis sem ber yfirskriftina Ný tegund svika, en þar bendir hún á að glæpahringir sem herja á fólk til að komast yfir aðgangsorð að heimabanka og kortaupplýsingum verði sífellt tæknilegri og aðferðir þeirra trúverðugri. Því gildi það sama um varnaðarorð og góða vísu – þau verða aldrei of oft kveðin.

Um þessa nýju tegund svika segir Heiðrún:

„Það nýjasta er að hringt er úr, að því virðist, íslenskum símanúmerum en svikararnir eru þó enskumælandi. Tilboð þeirra hljóma ansi oft of góð til að vera sönn, og þá er það einmitt málið, þau eru ekki sönn heldur svik.“

Heiðrún segir algengt að í símtölunum bjóði hinir enskumælandi fjársvikarar upp á fjárfestingatækifæri í rafmynt, eða tilkynni að sá eða sú sem er hringt í eigi eignir í rafmynt. Er fólki þá boðið að fá greitt fyrir að vera milliliðir í fjárfestingum í rafmynt.

„Í einhverjum tilvikum hafa svikararnir fengið fólk til að hlaða niður forritum á borð AnyDesk, TeamViewer eða Iperius Remote á tækin sín sem veita svikurunum í kjölfarið fullan aðgang að tækjum viðkomandi. Fólki er því eindregið ráðið gegn því að verða við beiðnum um að sækja þessi forrit eða önnur fyrir snjallsíma eða tölvur,“ segir Heiðrún.

Hún segir einnig í grein sinni að fólk hafi verið platað til að gefa upp leyninúmer rafrænna skilríkja og þannig komist svikahrapparnir inn á heimabanka og geta tæmt reikninga og misnotað kreditkort.

„Svikarar hafa einnig notað greiðslukortaupplýsingar til að kaupa rafmynt í rafmyntakauphöllum. Með þessu eru fjármunir tapaðir og fólk situr uppi með sárt ennið,“ segir Heiðrún sem hvetur fólk til að passa á sig á þessu og beinir svo nokkrum varnaðarorðum til lesenda sem eiga vel við nú sem endranær:

  • Aldrei gefa upp lykilorð inn á rafræn skilríki né staðfesta eitthvað nema vera þess fullviss um hvað er verið að samþykkja.
  • Aldrei samþykkja innskráningar eða aðgerðir í netbanka/appi s.s. millifærslur og kortafærslur nema vera þess fullviss að þú sért raunverulega að framkvæma þessar aðgerðir.
  • Aldrei samþykkja að hlaða niður forritum eða fara inn á síður sem þið þekkið ekki. Það getur verið að þú sért að veita utanaðkomandi svikara fullan aðgang að símanum þínum.
  • Aldrei gefa upp leyniorð eða kortaupplýsingar.
  • Aldrei samþykkja að verða milliliðir í einhverjum fjármálagerningum sem þið þekkið ekki, jafnvel gegn greiðslu.
  • Aldrei falla fyrir gylliboðum sem eru einfaldlega of góð til að vera sönn. Það eru allar líkur á því að það séu svik.
  • Ef þú færð símtal sem er tortryggilegt, slíttu því hið snarasta. Heiðarleg tortryggni getur borgað sig. Svikarar geta verið afar sannfærandi.
  • Hafðu strax samband við bankann þinn og lögreglu ef þú telur að þú hafir orðið fyrir svikum.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hæstaréttarlögmaður segir mál Karls Inga kalla á tiltekt

Hæstaréttarlögmaður segir mál Karls Inga kalla á tiltekt
Fréttir
Fyrir 2 dögum

„Ég held að þetta fyrirkomulag sé einstakt á heimsvísu. Við erum alltaf til staðar fyrir allt fólkið í landinu“

„Ég held að þetta fyrirkomulag sé einstakt á heimsvísu. Við erum alltaf til staðar fyrir allt fólkið í landinu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Páll flutti til Noregs og ber saman lífsgæði þar og á Íslandi – „Við eigum pening um hver mánaðamót“

Páll flutti til Noregs og ber saman lífsgæði þar og á Íslandi – „Við eigum pening um hver mánaðamót“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Nova flytur á Broadway

Nova flytur á Broadway
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Nýtt kaupréttakerfi nær til alls starfsfólks Nova

Nýtt kaupréttakerfi nær til alls starfsfólks Nova
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þingverðir sagðir hafa varnað því að fólk myndi gægjast inn um glugga – „Þetta þótti nokkuð óvenjuleg ráðstöfun“

Þingverðir sagðir hafa varnað því að fólk myndi gægjast inn um glugga – „Þetta þótti nokkuð óvenjuleg ráðstöfun“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

19 ára sjálfboðaliði kom miður sín heim eftir sölu á Neyðarkallinum: „Hver eru skilaboðin frá þessu aumkunarverða fólki til næstu kynslóðar?“

19 ára sjálfboðaliði kom miður sín heim eftir sölu á Neyðarkallinum: „Hver eru skilaboðin frá þessu aumkunarverða fólki til næstu kynslóðar?“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Kona úr Vogum sökuð um ofbeldi í garð sjúkraflutningamanns og lögreglumanna

Kona úr Vogum sökuð um ofbeldi í garð sjúkraflutningamanns og lögreglumanna