fbpx
Mánudagur 06.maí 2024
Fréttir

Þess vegna býður Arnar Þór sig fram – „Sagan má aldrei endurtaka sig en blikur eru því miður á lofti“

Ritstjórn DV
Föstudaginn 26. janúar 2024 13:00

Arnar Þór Jónsson.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Meginástæða þess að ég gef kost á mér til að gegna embætti forseta Íslands er sú að ég tel ógnir steðja að okkar dýrmæta lýðveldi,“ segir Arnar Þór Jónsson, lögfræðingur og forsetaframbjóðandi.

Arnar Þór skrifar grein á Vísi þar sem hann segir að þessar hættur leyni á sér og séu misjafnlega sýnilegar fólki. „Bæði eftir því sem það hefur upplifað sjálft og líka eftir því sem það vill sjá og heyra,“ segir Arnar Þór meðal annars í grein sinni.

En í hverju felast þessar ógnir?

„Ógnirnar sem steðja að íslensku lýðræði felast að mínu viti í því að fulltrúalýðræðið er að fjarlægjast hinn upphaflega tilgang sinn,“ segir Arnar Þór

Eina vörnin fólgin í virku lýðræði

Hann segir að við höfum um langa hríð skipað okkur í ólíkar fylkingar og greitt ólíkum stjórnmálaflokkum atkvæði til þess að tryggja áherslumálum okkar brautargengi. Þannig hafi valdið komið frá fólkinu.

„Gjarnan mótar stór hópur stefnuna, t.d. á flokksþingum, sem setur svo fulltrúa sína til verka á Alþingi eða í sveitarstjórnum. Þannig höfum við í senn hvatt fólk til sjálfstæðrar ákvarðanatöku og þátttöku á sviði stjórnmálanna. Við höfum laðað fram heilbrigð skoðanaskipti innan flokkanna og á milli þeirra og staðið vörð um sjálfstæði þjóðarinnar og sameiginleg hagsmunamál hennar. En nú er hún Snorrabúð stekkur. Eða hvað? Getur verið að feðranna frægð sé „fallin í gleymsku og dá“ eins og Jónas Hallgrímsson gerði svo eftirminnilega að yrkisefni sínu í ljóðinu um Ísland farsældafrón.“

Arnar rifjar upp að það hafi verið heimssögulegur atburður þegar Íslendingar stofnuðu Alþingi á Þingvöllum árið 930.

„Alþingi var í senn löggjafarþing og æðsti dómstóll þjóðarinnar allt þar til við samþykktum Gamla sáttmála og gengum Noregskonungi á hönd. Um leið seldum við erlendu valdi sjálfstæði okkar og endurheimtum það ekki fyrr en í áföngum meira en sex hundruð árum síðar. Sagan má aldrei endurtaka sig en blikur eru því miður á lofti. Eina vörnin er fólgin í virku lýðræði þar sem hver og einn fær tækifæri til þess að taka þátt og leggja sitt af mörkum.“

Arnar Þór segir að lýðræði sé ekki áhorfendasport og það byggist ekki upp á því að nokkrir útvaldir mæti til leiks og heyi keppnina á eigin forsendum. Þvert á móti.

„Keppendur eru valdir af grasrótinni og fá ekki einungis fyrirmælin um erindi sitt frá stuðningsfólkinu heldur einnig aðhaldið í gegnum samtal þar sem allir geta tjáð sig og hafa sama aðgang að ræðustólnum. Þannig eru grundvallaratriði lýðræðisins. Um þau vil ég standa vörð og ég tel ekki veita af því að hvatning og aðhald í þeim efnum komi frá eina embættismanni þjóðarinnar sem kosinn er beinni og milliliðalausri lýðræðislegri kosningu – forsetanum. Sérstaklega þegar sú staða virðist blasa við að stór hluti stjórnmálamanna sé smám saman að missa sjónar á aðalatriðunum í hlutverki sínu og skyldum gagnvart umbjóðendum sínum og lýðræðinu.“

Rótin hjá almenningi

Arnar segir að rót lýðræðisins sé hjá almenningi en ekki hjá stjórnmálaflokkunum sjálfum, stórfyrirtækjum sem seilast til áhrifa, fræðimönnum sem tala í krafti sérþekkingar, embættismönnum eða alþjóðlegum stofnunum.

„Í stað þess að stjórnað sé með reglum sem eiga sér lýðræðislega rót í samfélagi sjálfstæðra einstaklinga færist ákvarðanatakan yfir til flokka sem í framkvæmd sýna viðleitni í þá átt að stýra með valdboði og leggja áherslu á hlýðni við yfirvald fremur en sjálfræði einstaklingsins og þátttöku hans í stjórn sinna mála. Undir merkjum fagmennsku setja þrýstihóparnir gjarnan fram stefnuskrár sem klæddar eru í búning almannahagsmuna en þjóna í reynd þröngum sérhagsmunum.“

Arnar Þór segir að á hinu alþjóðlega sviði séu sumir þessara þrýstihópa svo stórir, valdamiklir og fjársterkir að smáríki eins og Ísland mega sín lítils í leiknum.

„Undan þrýstingi á slíkum vettvangi, t.d. meðal embættismanna ESB, meðal auðjöfra í Davos eða fulltrúa (ólýðræðislegra) stórvelda á vettvangi SÞ, mega fulltrúar Íslands ekki kikna. Þeirra hlutverk er ekki að starfa í þágu sérhagsmuna víða um heim heldur að verja stjórnarskrá lýðveldisins og standa vörð um þjóðarhag á breiðum faglegum, efnahagslegum og þjóðhagslegum grunni.“

Arnar Þór segist hafa áhyggjur af því að þjóðkjörnir stjórnmálamenn og ekki síst ráðamenn íslenskrar þjóðar, séu að fjarlægjast lýðræðislegar skyldur sínar og í sumum tilfellum, kannski óafvitandi, að þróast yfir í það að verða einhverskonar embættismenn sem ganga erinda alls kyns þrýstihópa og lúta jafnvel erlendu valdi þannig að gengið sé á stjórnarskrárvarin réttindi fólksins í landinu.

Arnar segir að í slíkum tilfellum telji hann að forseti Íslands eigi að nýta sér þann rétt sem hann hefur til þess að vísa málum beint til þjóðarinnar.

„Það er að mínu viti stærsta verkefni embættis forseta Íslands að næra, eins og frekast er unnt, sjálfstæða ákvarðanatöku einstaklinganna í heilbrigðu lýðræðisríki og standa vörð um sjálfstæði þjóðarinnar í farsælu samstarfi sínu við aðrar þjóðir.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Stefán Einar svarar fyrir sig – Segir ómerkilega menn hafa ráðist á eiginkonu hans – „Þá skortir sómakennd til að sjá að sér“

Stefán Einar svarar fyrir sig – Segir ómerkilega menn hafa ráðist á eiginkonu hans – „Þá skortir sómakennd til að sjá að sér“
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Elín Hirst óttast um velferð föður síns

Elín Hirst óttast um velferð föður síns