fbpx
Sunnudagur 08.desember 2024
Fréttir

Anna fór í bakarí og blöskraði verðið – Eyddi færslunni þegar lesendur bentu henni á þetta

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 18. júní 2024 16:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Verðlag á Íslandi er býsna vinsælt þrætuepli hér á landi og á Facebook er til sérstakur hópur, Vertu á verði – eftirlit með verðlagi, sem gengur nánast út á að vakta verð á hinu og þessu og benda á það sem betur mætti fara.

Í morgun birtist athyglisverð færsla frá konu einni, Anna að nafni, sem fór í Axelsbakarí á Akureyri í morgun þar sem hún keypti snúð, tvö smurð rúnstykki, tvo kaffibolla og kókómjólk.

Fyrir þetta borgaði hún 2.760 krónur og þótti greinilega nóg um. „Þvílíka verðlagið, þangað förum við ekki inn aftur,“ sagði hún meðal annars og benti á að rúnstykkin hefði minnkað „allhressilega“.

Færslan vakti talsverða athygli og voru flestir á því að verðlagið þarna sé fullkomlega eðlilegt og í raun töluvert ódýrara en gengur og gerist annars staðar.

„Mér finnst þetta nú bara með því ódýrara sem ég sé úr bakaríum,“ sagði ein og var komin með hátt í 150 „læk“ á einni klukkustund. „Mjög gott verð. Þú hefur farið öfugu megin fram úr í morgun,“ sagði annar.

„1.380 kr .á mann fyrir kaffi og snúð/rúnstykki, borðað á staðnum, vaskað upp og borðið þrifið eftir ykkur fyrir næsta viðskiptavin? Er það svo galið,“ spurði svo einn.

Aðrar athugasemdir voru í svipuðum dúr: „Þetta er nú frekar sanngjarnt verð. Það þarf að hugsa fyrir því að þarna eru starfsmenn á launum, húsnæði og fleira sem þarf að borga. Þeir peningar detta ekki af himnum ofan.“

Eftir að athugasemdirnar höfðu hrúgast inn hvarf færslan í hópnum og er hún ekki aðgengileg lengur. Virðist konan því hafa séð að sér og eytt færslunni í kjölfar þeirrar gagnrýni sem hún fékk.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Vuk í Fram
Fréttir
Í gær

Ólafur varar við samstarfi við Ingu Sæland – „Krefst árásar á félagsmenn lífeyrissjóða“

Ólafur varar við samstarfi við Ingu Sæland – „Krefst árásar á félagsmenn lífeyrissjóða“
Fréttir
Í gær

Hannes gagnrýnir Þórdísi Kolbrúnu harðlega: „Ég veit ekki á hvaða ferðalagi hún er“

Hannes gagnrýnir Þórdísi Kolbrúnu harðlega: „Ég veit ekki á hvaða ferðalagi hún er“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Tónlistarflytjendurnir sem fá listamannalaun 2025

Tónlistarflytjendurnir sem fá listamannalaun 2025
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Gunnar Smári hefur ekki trú á að stjórnarmyndunin takist – „Ég býst við að Samfylkingarfólk sé að vakna upp við þessa stöðu núna“

Gunnar Smári hefur ekki trú á að stjórnarmyndunin takist – „Ég býst við að Samfylkingarfólk sé að vakna upp við þessa stöðu núna“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Örvæntingarfull leit að lottóvinningshafa – Milljarðar renna honum úr greipum á laugardag

Örvæntingarfull leit að lottóvinningshafa – Milljarðar renna honum úr greipum á laugardag
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Nýr meðferðargangur opnaður á Litla Hrauni

Nýr meðferðargangur opnaður á Litla Hrauni