fbpx
Laugardagur 18.maí 2024
Fréttir

Til skoðunar að sekta ökumenn á nagladekkjum í vikunni – Getur reynst ökumönnum dýrt

Kristinn H. Guðnason
Sunnudaginn 5. maí 2024 10:30

Eins gott er að fara að skipta um dekk.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er með það til skoðunar að byrja að sekta þá ökumenn sem enn þá keyra á nagladekkjum í þessari viku. Það ræðst á langtímaveðurspá.

Þetta kemur fram í svari aðstoðaryfirlögregluþjóns við umferðardeild Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við fyrirspurn heimildarmanns DV.

Nagladekk eru bönnuð eftir 14. apríl og til október loka. Að sögn lögreglumannsins er orðalag reglugerðar um búnað ökutækja orðuð svo að það er mjög matskennt hvenær sektað er. Það er ef ekki er komið sumarfæri meira og minna um allt land og langtímaveðurspá sýni ekki þörf fyrir vetrarbúnað, svo sem með næturfrosti eða snjókomu á heiðum.

80 þúsund króna sekt

Bent er á að suðvesturhorn landsins er í raun og veru að verða eitt atvinnusvæði. Það er margt fólk býr kannski austan við Hellisheiði en starfar á höfuðborgarsvæðinu.

Vegna þessa telur lögreglan ekki rétt að ætlast til þess að ökumenn skipti um dekkjabúnað á milli landsvæða. Ekki heldur væri rétt að sekta í dag en ekki á morgun. Veðraskipti eru til dæmis mjög algeng í bæði apríl og hafa ökumenn aldrei verið sektaðir fyrir nagladekkjanotkun í þeim mánuði.

Sjá einnig:

Segir nagladekk ekki vera bestu vetrardekkin

Eins og áður segir er til skoðunar að byrja að sekta fyrir nagladekkjanotkun einhvern tímann í vikunni. Þegar sú dagsetning liggur fyrir verður hún tilkynnt lögreglumönnum, fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum svo að allir getið gengið að því vísu að við lögregluafskipti komi til sekta ef ekið er á negldum hjólbörðum á höfuðborgarsvæðinu eftir tilkynningu.

Sektir fyrir að keyra á nagladekkjum eru háar. 20 þúsund krónur á hvern hjólbarða, eða 80 þúsund krónur í flestum tilvikum.

Felldu niður sektir

DV greindi frá því föstudaginn 26. apríl að lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefði sektað tíu ökumenn sem gómaðir hefðu verið á nagladekkjum helgina áður. Þær sektir voru hins vegar felldar niður og sagt að um samskiptaleysi hafi verið að ræða.

„Rétt er það að nokkrir ökumenn fengu sektir um helgina – en þær verða felldar niður þar sem sama verður yfir alla að ganga. Því miður voru skilaboð hér innanhúss ekki nægjanlega skýr og því varð úr sá leiði misskilningur og nokkrir ökumenn fengu sektir. Það verður lagfært okkar megin. Vegna þess að vetrarfærð ríkir enn á hluta landsins er ekki hægt að byrja að sekta, en þó gerum við það um leið og það breytist,“ sagði í tilkynningu lögreglunnar.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Öryggisverðir fylgja Bjarna hvert fótmál

Öryggisverðir fylgja Bjarna hvert fótmál
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Rúnar Hroði gefst ekki upp: „Ég ætla að fara með þetta alla leið“

Rúnar Hroði gefst ekki upp: „Ég ætla að fara með þetta alla leið“
Fréttir
Í gær

Langveik ung kona fékk liðsauka í barningi sínum við Sjúkratryggingar – Sögð hafa þurft samþykki stofnunarinnar fyrir aðgerð sem læknir sagði nauðsynlega

Langveik ung kona fékk liðsauka í barningi sínum við Sjúkratryggingar – Sögð hafa þurft samþykki stofnunarinnar fyrir aðgerð sem læknir sagði nauðsynlega
Fréttir
Í gær

Allir efstu sex forsetaframbjóðendurnir hafa djammað

Allir efstu sex forsetaframbjóðendurnir hafa djammað
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sigmundur segir skemmdarverk framið á íslenskri tungu og nefnir fjölmörg dæmi

Sigmundur segir skemmdarverk framið á íslenskri tungu og nefnir fjölmörg dæmi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Mannbjörg varð þegar strandveiðibátur sökk norðvestur af Garðskaga

Mannbjörg varð þegar strandveiðibátur sökk norðvestur af Garðskaga