fbpx
Miðvikudagur 11.desember 2024
Fréttir

Verk og vit sett með pomp og prakt

Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 19. apríl 2024 15:29

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stórsýningin Verk og vit var sett í sjötta sinn með pomp og prakt í Laugardalshöll síðdegis í gær. Yfir 100 sýnendur taka þátt í sýningunni. Ásmundur Einar Daðason mennta- og barnamálaráðherra, Svandís Svavarsdóttir innviðaráðherra og Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, fluttu ávörp. Að ávörpum loknum var sýningin opnuð formlega. Á Verk og vit kynna fyrirtæki og stofnanir í byggingariðnaði, mannvirkjagerð og skipulagsmálum vörur sínar og þjónustu. Sýningin er opin fagaðilum alla sýningardagana, en almenningi gefst kostur á að heimsækja hana um helgina, eins og segir í tilkynningu.

„Það er frábært að finna kraftinn hér á þessari sýningu sem hefur skipað sér mikilvægan sess fagaðila á milli og ekki síður samtal við almenning. Mannvirkja- og skipulagsgerðin felur í sér starfsemi sem er umfangsmikil og krefst notkunar margs konar tækni og tækja,“ sagði Svandís meðal annars í ávarpi sínu. Hún fjallaði einnig um mikilvægi fjárfestinga í vegakerfinu og samgöngumálum almennt og að mikilvægt sé að horfa til umhverfismála í geiranum. „Það eru mikil sóknarfæri í nýsköpun og hönnun sem getur í grunninn verið vistvæn. Ef okkur er alvara með að sporna við umhverfisáhrifum þá þurfum að taka umhverfissjónarmið inn í alla þætti hönnunarferlis og mannvirkjagerðar,“ sagði Svandís.

„Það er aðdáunarvert að sjá hina miklu grósku sem er og hefur verið í þessum geira. Ríkisstjórnin hefur lagt mikla áherslu á eflingu verk- og starfsnáms á okkar starfstíma,“ sagði Ásmundur meðal annars í ávarpi sínu og bætti við að hlutfall iðnnema sé miklu lægra hér á landi en á hinum Norðurlöndunum sem væri alvarlegt mál og við því þyrfti að sporna. Hann sagði ríkisstjórnina hafa sett sér skýr markmið til næstu 10 ára um að byggja upp skólahúsnæði fyrir verk- og starfsmenntaskóla. „Við þurfum að byggja 12 þúsund fermetra húsnæði fyrir slíkan skóla á næstu árum samhliða því að byggja nýjar höfuðstöðvar fyrir Tækniskólann ef við ætlum okkur að vinna upp þá biðlista sem hafa myndast í verk- og starfsnámi,“ sagði Ásmundur ennfremur.

„Iðnaðurinn er sannarlega öflugur. Í heild sinni velti iðnaðurinn um 600 milljörðum króna í fyrra. Hann skapar um 18.000 störf og lagði um 305 milljarða króna af mörkum til landsframleiðslunnar á síðasta ári,“ sagði Sigurður m.a. í ávarpi sínu. Hann sagði að þótt þetta væru háar tölur þá þurfi að auka fjárfestingu í vegakerfi og íbúðarhúsnæði. Ennfremur sagði Sigurður að skortur á iðnmenntuðu fólki kæmi í veg fyrir vöxt greinarinnar og því leggi Samtök iðnaðarins ríka áherslu á að vekja áhuga fólks á fjölbreyttum störfum í iðnaðinum og iðnnámi. „Það er virkilega leitt að á bilinu 600 til 1.000 nemendum er vísað frá iðnnámi árlega vegna skorts á aðstöðu og fjármagni,“ sagði Sigurður.

Samhliða sýningunni verður einnig haldin ráðstefna og aðrir viðburðir. Meðal sýnenda eru byggingaverktakar, verkfræðistofur, tækjaleigur, hugbúnaðarfyrirtæki, framleiðendur, menntastofnanir og ráðgjafafyrirtæki og er mikill hugur í þeim að gera sýninguna sem glæsilegasta.

Áslaug Pálsdóttir, framkvæmdastjóri AP almannatengsla, sem er framkvæmdaraðili sýningarinnar, sagði mikinn metnað ríkja meðal sýnenda og það geri sýninguna jafn glæsilega og raun ber vitni. Samstarfsaðilar sýningarinnar eru mennta- og barnamálaráðuneytið, innviðaráðuneytið, Samtök iðnaðarins, Byko og Landsbankinn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

„Forkastanlegt að atvinnurekendur skuli grafa með þessum hætti undan réttindum launafólks“

„Forkastanlegt að atvinnurekendur skuli grafa með þessum hætti undan réttindum launafólks“
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Ólafur Ágúst spyr hvort Vernd sé einkarekið fangelsi í dulbúningi – „Ákveðin tegund þrælahalds“

Ólafur Ágúst spyr hvort Vernd sé einkarekið fangelsi í dulbúningi – „Ákveðin tegund þrælahalds“
Fréttir
Í gær

Öskrin í konunni reyndust á „heldur jákvæðari nótum“ en óttast var

Öskrin í konunni reyndust á „heldur jákvæðari nótum“ en óttast var
Fréttir
Í gær

Zelenskyy segir að hægt sé að senda erlendar hersveitir til Úkraínu áður en af NATÓ-aðild verður

Zelenskyy segir að hægt sé að senda erlendar hersveitir til Úkraínu áður en af NATÓ-aðild verður
Fréttir
Í gær

Ákeyrsla á bílastæði eyðilagði framtíðina sem hún stefndi að

Ákeyrsla á bílastæði eyðilagði framtíðina sem hún stefndi að
Fréttir
Í gær

Sigurður Fannar ákærður fyrir morð á dóttur sinni

Sigurður Fannar ákærður fyrir morð á dóttur sinni