Þegar hann var spurður hver sé stærsta áskorunin sem Bandaríkin standa frammi fyrir núna sagði hann: „Hmm . . . það eru kosningar fram undan. Þær eru mjög mikilvægar en ég ætla ekki að ræða þær hér. Ég held að við getum gengið út frá því að áheyrendur viti hvar ég stend í þeim efnum.“
TV2 segir að Obama hafi algjörlega sleppt því að nefna Donald Trump með nafni en hins vegar hafi nafn Vladímír Pútín nokkrum sinnum verið nefnt þegar Obama ræddi um stærstu áskoranir Bandaríkjanna og heimsins nú. Hann nefndi aðallega ógnina sem steðjar að lýðræðinu núna.
Hann ræddi um heimsbyggðina, aðallega Vesturlönd, sem höfðu þar til fyrir um 10 árum síðan sömu hugmyndir um réttarríkið, mannréttindi og frjálsar kosningar og skipti þá engu hvort fólk tilheyrði vinstri- eða hægri vængnum.
„Þá var almenn samstaða um ytri ramma þess hvernig við lifðum saman en í dag eru einstaklingar, bæði í Bandaríkjunum og Evrópu, sem í sífellt meiri mæli fara út fyrir þennan ramma og vilja gera hvað sem er til að komast til valda. Öfgafyllsta dæmið er land eins og Rússland Pútíns sem gengur gegn hugmyndinni um að það sé þess virði að varðveita lýðræðið. Meira að segja í Bandaríkjunum og hlutum Evrópu er þetta svolítið sem veldur vaxandi áhyggjum hjá mér,“ sagði hann.
Önnur stór áskorun sem hann nefndi er uppskrift að hörmungum að hans mati og koma fjölmiðlar og upplýsingastreymi þar við sögu.
Hann sagði að þegar hann var að alast upp hafi verið þrjár stórar sjónvarpsstöðvar og nokkrar útvarpsstöðvar. Þetta hafi ekki verið fullkomið og því hafi farið fjarri að öll sjónarmið hafi fengið rými í fréttaflutningi, og þá alls ekki sjónarmið svartra. En hins vegar hafi allir fengið fréttirnar frá sama staðnum. „Þú hafðir að minnsta kosti sameiginlega sögu og sameiginlegan skilning á staðreyndum. Við gátum rætt um Víetnamstríðið sem dæmi og mikill hiti var í umræðunni en enginn dró í efa að við vorum í stríði í Víetnam,“ sagði hann.
Hann sagði síðan að það valdi honum miklum áhyggjur að meirihluti ungu kynslóðarinnar fái fréttirnar úr farsímum sínum og endalausum flettingum á samfélagsmiðlum. „Þetta er uppskrift að hörmungum,“ sagði hann og bætti við að það geri vandann enn meiri að áróðursmeistarar um allan heim reyni að troða fölsum boðskap sínum ofan í heimsbyggðina.