fbpx
Mánudagur 11.ágúst 2025
Fréttir

Sólveig Anna reið Bjarnheiði – „Vonandi fer þetta skíta-verkefni beint á ruslahauginn þar sem það á heima“

Ragna Gestsdóttir
Sunnudaginn 16. júlí 2023 16:14

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Henni datt ekkert annað í hug en að sturlast úr frekju og bræði þegar að ljóst var að vinnuaflið sem að hún vill láta arðræna á hótelum borgarinnar var tilbúið til að nota lögvarinn rétt sinn og leggja niður störf,“ segir Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, sem er ekki par sátt við Bjarnheiði Hallsdóttur, formann Samtaka ferðaþjónustunnar.

Í færslu á Facebook segir Sólveig Anna Bjarnheiði hafa logið því síðasta vetur í aðsendri grein á Vísi að  ferðaþjónustan væri „á hnjánum“ eftir kórónuveirufaraldurinn og líkti Eflingu við „heimagerðar hamfarir“ vegna baráttu láglaunafólks höfuðborgarsvæðisins fyrir mannsæmandi launum. 

„Tilbúið til að fara í verkfall til að knýja forhert auðvald eins og Bjarnheiði til að deila meira af arðinum með þeim sem knýja áfram gróðavél ferðaþjónustunnar, félagsfólki Eflingar. Hún laug því líka að leggði félagsfólk Eflingar niður störf, sem eru þeirra stjórnarskrárvörðu grundvallar-mannréttindi, myndi verðbólgan aukast og að fólk yrði atvinnulaust. Semsagt, að réttmæt og sjálfsögð barátta láglaunafólks, að stærstum hluta aðflutts fólks, fyrir betra lífi, fyrir því að eiga möguleika á því að geta gert eitthvað aðeins meira en að skrimmta, væri glæpsamleg árás á lífsgæði allra Íslendinga,“ segir Sólveig Anna og segir hún áróður Bjarnheiðar auðvirðilegar og til ömurlegrar skammar. 

„En sumt fólk er því miður þannig innréttað að það vill frekar ráðast með lygum og svívirðingum á manneskjurnar sem að gera því sjálfu kleift að lifa í vellystingum en að koma vel og mannúðlega fram. Það er sú „menning“ sem fólk eins og Bjarnheiður aðhyllist, samfélagi okkar til óendanlegs skaða.“

Ekki sátt við nýtt átak ferðaþjónustunnar

Tilefni færslu Sólveigar Önnu er nýtt átak ferðaþjónustunnar sem kynnt var rétt fyrir helgi, gestgjafar.is, sem snýst um að fá fólk til að búa til póstkort með kveðju til ferðamanna og deila á samfélagsmiðlum. Markmiðið er að minna á allt það góða.

Sólveig Anna er þó ekki sátt við framtakið og segir Bjarnheiði ætla að lokka okkur öll til ap auglýsa fallega landið okkar fyrir hana.

„Vill gera okkur öll að „gestgjöfum“ í gróða-veislu hennar og félaga hennar. Vill að við öll hjálpum henni að selja heimaland okkar svo að hún verði ríkari. Og ríkari og ríkari,“ segir Sólveig Anna, sem segir stjórnvöld veruleikafirrt í þessu átaki, líkt og þau voru í málinu með söluna á Íslandsbanka.

„Og þetta ætlar hún að gera með algjörlega veruleikafirrtum stjórnvöldum sem eru því sem næst umboðslaus með öllu eftir svik, pretti, lygar og síðast en ekki síst þjófnað á þjóðareign okkar í þágu vina og vandamanna. Stjórnvöldum sem eru þannig „gestgjafar“ fyrir láglaunafólk á höfuðborgarsvæðinu að þeim finnst ekkert að því að fólk sé á hrakhólum á siðlausum leigumarkaði, færandi auðvaldinu stóran part af lélegu laununum sínum, til þess eins að geta tryggt sér þak yfir höfuðið. Stjórnvöldum sem vilja helst, í samkrulli við Bjarnheiði og SA, svipta þetta sama fólk verkfallsréttinum í þeim tilgangi að tryggja auðstéttinni endaleg og algjör yfirráð yfir vinnuaflinu.

Þvílík skömm, þvílíkt siðleysi. Þetta er svo ruglað að það er ekki einu sinni hægt að hlæja að þessu. Vonandi fer þetta skíta-verkefni beint á ruslahauginn þar sem það á heima.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Vöknuðu upp við vondan draum – Vissu ekki að nýtt fjölbýlishús ætti að vera svona nálægt

Vöknuðu upp við vondan draum – Vissu ekki að nýtt fjölbýlishús ætti að vera svona nálægt
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Nágrannaerjur í Vesturbænum – Fá ekki að losna við girðingu nágrannanna sem vísa til brunahættu og óþefs

Nágrannaerjur í Vesturbænum – Fá ekki að losna við girðingu nágrannanna sem vísa til brunahættu og óþefs
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Vilhjálmur segir að þessi aðgerð geti lækkað vexti á Íslandi hratt – Hafa stjórnvöld kjarkinn?

Vilhjálmur segir að þessi aðgerð geti lækkað vexti á Íslandi hratt – Hafa stjórnvöld kjarkinn?
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hlutfallslega miklu fleiri erlendir ríkisborgarar á Íslandi en öðrum Norðurlöndum

Hlutfallslega miklu fleiri erlendir ríkisborgarar á Íslandi en öðrum Norðurlöndum
Fréttir
Fyrir 4 dögum

Íslenskir neytendur óskuðu eftir endurgreiðslu vegna flugs – Áttuðu sig síðan á þessum mistökum

Íslenskir neytendur óskuðu eftir endurgreiðslu vegna flugs – Áttuðu sig síðan á þessum mistökum
Fréttir
Fyrir 4 dögum

Lögreglan rifjar upp rán í Útvegsbanka árið 1975 – Einn ræningjanna létti á samvisku sinni í sumar

Lögreglan rifjar upp rán í Útvegsbanka árið 1975 – Einn ræningjanna létti á samvisku sinni í sumar