fbpx
Laugardagur 27.júlí 2024
Fréttir

Sigrún flúði Grindavík og bað vinnuveitandann um rúm að láni – Hann stofnaði styrktarreikning fyrir bæjarbúa og lagði inn fyrstu milljónina – „Við erum öll Grindvíkingar“

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 6. desember 2023 15:30

Sigrún, Ásdís Kristinsdóttir forseti bæjarstjórnar Grindavíkur, Steinþór og Lilja Karen Steinþórsdóttir aðstoðarhótelstjóri og markaðsstjóri Hótel Keflavíkur Ljósmynd: Víkurfréttir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eigendur Hótel Keflavík og KEF Restaurant hafa ákveðið að leggja sitt af mörkum og sýna Grindvíkingum, á þessum miklu óvissutímum sem dynja nú yfir íbúa Grindavíkur og samfélagið þar, í verki að „við sem þjóð ætlum að styðja við bakið á þeim í þessum hamförum og vera til staðar fyrir þau,“ eins og segir í söfnun þeirra Okkar Grindavík.

Hótel Keflavík hefur stofnað söfnunarreikning í ljósi stöðunnar og óvissunnar sem íbúar búa við.

„Við báðum bókarann okkar hana Sigrúnu Þorbjörnsdóttur að leggja inn 1.000.000 króna sem er framlag Hótel Keflavíkur og KEF Restaurant inn á reikninginn. Sigrún okkar er ein af þeim Grindvíkingum sem hefur þurft að yfirgefa heimilið sitt ásamt fjölskyldu sinni og gæludýrum.“

Hótel Keflavík skorar á önnur fyrirtæki á landinu öllu, sveitarfélög landsins og alla samlanda okkar að styðja Okkar Grindavík.

„Söfnun þessi er fyrir samfélagið sjálft og mun nýtast sem stuðningur fyrir íbúa, félagasamtök og fleira. Við munum svo leita til Bæjarráðs Grindavíkur sem mun á seinni stigum skipa hóp sem sér um að úthluta þeim fjármunum sem safnast, enda með betri yfirsýn um málefni íbúa.“

Flúði hálftíma fyrir rýmingu bæjarins

„Eins og mjög margir Grindvíkingar, þá flúði ég heimili mitt hálftíma fyrir rýmingu bæjarins. Ég var á leiðinni í skjálftafrí yfir helgina í sumarbústaðinn okkar og tók þess vegna ekki mjög mikið með mér. Hafði þó rænu á því að taka fjölskyldumyndir með og kisurnar okkar, maðurinn minn hafði flúið með skelkaðan hundinn tveimur dögum áður,“ segir Sigrún við Víkurfréttir.

„Ég sæki vinnu á Hótel Keflavík og dæturnar eru í skólum í Reykjavík svo það hentaði okkur ekki vel að dvelja í sumarbústaðnum og keyra á milli þegar í ljós kom að við værum ekki á heimleið í bráð. Ég var svo lánsöm að fá íbúð í Reykjavík en sat um leið uppi með engar nauðsynjar, þótt það séu dauðir hlutir þá er samt margt af því nauðsynlegt. Okkur vantaði til dæmis rúm og sængur og ég leitaði til vinnuveitanda míns hvort það væri mögulega hægt að fá lánuð rúm og var það auðsótt mál og því reddað strax. Þá kom upp þessi hugmynd hjá eigendum Hótel Keflavík að hefja söfnun fyrir íbúa Grindavíkur. Það er ótrúlega margt sem fólk hefur þurft að kaupa aukalega til að koma sér upp nýju heimili og kostnaðurinn er fljótur að fara upp.

Ég tók ákvörðun strax að halda utan um kostnaðinn og hjá minni fjölskyldu er hann kominn vel á annað hundrað þúsund og ég veit að það er þannig hjá flestum, fyrir utan allt annað tjón sem íbúar sitja uppi með. Það er þakkarvert hvað margir eru tilbúnir að styðja við Grindvíkinga og vona ég að fleiri fyrirtæki fylgi þessu eftir og taki þátt í þessu risastóra verkefni sem framundan er.“

Styrktarreikningur Okkar Grindavík

Þeir sem vilja styrkja Grindvíkinga geta lagt inn á:

Reikningur: 0146-26-000001

Kennitala: 580169-1559

Á vefsíðunni styrkja.is/okkargrindavik verður hægt að leggja beint á reikninginn, skila kveðjum,  skora á aðra og deila málstaðnum áfram á samfélagsmiðlum.

„Núna er tíminn til að hjálpa. Sýnum þeim í verki að við erum hér núna og gerum allt sem í okkar valdi stendur til að aðstoða. Við erum öll Grindvíkingar.

Ótti og hræðsla byggist á því sem enginn veit og óvissu um framtíðina. Styrkur felst í að standa saman og styðja hvort annað.“

Undir söfnunina skrifar Steinþór Jónsson með vinsemd og kærleika fyrir hönd starfsfólks og stjórnar Hótel Keflavík

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt