fbpx
Sunnudagur 28.apríl 2024
Fréttir

Stefán segir Einar hafa tileinkað sér viðhorfið í jólaslagara Helga Björns 

Ritstjórn DV
Föstudaginn 22. desember 2023 16:15

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stefán Pálsson, sagnfræðingur og varaborgarfulltrúi Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs, segir að Einar Þorsteinsson, formaður borgarráðs og verðandi borgarstjóri, virðist hafa tileinkað sér viðhorfið sem birtist í jólaslagara Helga Björns, Ef ég nenni.

Stefán gerir fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar að umtalsefni í pistli á Vísi og bendir á að aðventan sé tími jólalaganna. Eitt það eftirminnilegasta sé einmitt lag Helga Björns, með texta Jónasar Friðriks, um þau djásn og gersemar sem hann hyggst færa elskunni sinni.

„Sögumaður slær þó í og úr – allt þetta hangi á þeirri spýtu að hann nenni því þegar á hólminn er komið.“

Stefán segir að Einar virðist hafa ákveðið að tileinka sér viðhorf Helga í umræddum slagara.

„Fyrr í mánuðinum, daginn áður en meirihlutaflokkarnir í Reykjavík samþykktu endanlega fjárhagsáætlun sem fól í sér hækkanir á flestum gjaldskrám borgarinnar til samræmis við vísitölu, mætti téður Einar í viðtöl og lét að því liggja að kannski yrðu þessar hækkanir ekki alveg jafnmiklar. Það væri bara aldrei að vita. Ef hann nennti…“

Stefán rifjar svo upp að fjárhagsáætlunin hafi verið samþykkt óbreytt og innihélt hún þriðju hækkun Reykjavíkur á skömmum tíma á gjaldskrám í leikskólum, grunnskólum og frístundaheimilum.

„Allar hækkanirnar hafa verið réttlættar á þann hátt að með þeim sé verið að láta gjaldskrár „halda verðgildi sínu“. Það eru skrauthvörf fyrir það að skila auðu í baráttunni við verðbólguna.“

Stefán segir að Reykjavíkurborg hafi ákveðið að spila ekki með og vænti þess að ríkisvaldið, launafólk og atvinnurekendur beri byrðarnar í staðinn.

„Með þessu er auknum álögum velt á fjölskyldurnar í borginni. Þetta er metnaðarlaus efnahagsstjórn sem við í Vinstri grænum höfum gagnrýnt harðlega.“

Hann segir svo að það sé til að bíta höfuðið af skömminni þegar meirihlutaflokkarnir samþykktu yfirlýsingu á síðasta fundi borgarráðs í gær þess efnis að til greina komi að einhver hluti þegar samþykktra gjaldskrárhækkana gangi til baka. En þó aðeins ef ákveðin skilyrði borgarinnar um hófsamar kjarasamningshækkanir í komandi viðræðum gangi eftir.

„Einar Þorsteinsson og borgarstjórnarmeirihlutinn ætla kannski og mögulega að leggja sitt af mörkum í baráttunni við verðbólguna, ef þeim þóknast og ef þau nenna. Í hugum meirihlutans eru gjaldskrárhækkanir á barnafólk í Reykjavík fyrst og fremst tæki til að þrýsta á samningsaðila í kjaraviðræðum. Eftir stendur spurningin um hvaða gjaldskrár meirihlutinn í Reykjavík nenni að lækka og hversu litlar kjarabætur launafólks hugnast stjórnendum höfuðborgarinnar í komandi samningum?“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Sjáðu myndbandið: Sverrir Einar handtekinn og leiddur út í járnum í miðbænum

Sjáðu myndbandið: Sverrir Einar handtekinn og leiddur út í járnum í miðbænum
Fréttir
Í gær

Snorri og Patrik vekja hneykslun: Konan hugsi um börnin og karlinn um peningana – „Gömlukallaraus í ungum mönnum“

Snorri og Patrik vekja hneykslun: Konan hugsi um börnin og karlinn um peningana – „Gömlukallaraus í ungum mönnum“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Pálmatré raunhæft verkefni en aðeins eitt tré mun rísa

Pálmatré raunhæft verkefni en aðeins eitt tré mun rísa
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kári Hansen skilaði inn meðmælum til forseta Íslands rafrænt

Kári Hansen skilaði inn meðmælum til forseta Íslands rafrænt
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Reiði vegna skemmdarverks á Suðurgötu: Málið verður tilkynnt lögreglu – Sjáðu myndina

Reiði vegna skemmdarverks á Suðurgötu: Málið verður tilkynnt lögreglu – Sjáðu myndina
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Tveir Bretar hætt komnir á Íslandi: Grét þegar hann sagði frá slysinu – Vinur hans enn á spítala

Tveir Bretar hætt komnir á Íslandi: Grét þegar hann sagði frá slysinu – Vinur hans enn á spítala
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Mótmælin á Tenerife – Vill ekki ferðamenn með „allt-innifalið“ armbönd

Mótmælin á Tenerife – Vill ekki ferðamenn með „allt-innifalið“ armbönd
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Helga Þórisdóttir búin að ná meðmælendum

Helga Þórisdóttir búin að ná meðmælendum