fbpx
Þriðjudagur 11.nóvember 2025
Fréttir

Lögreglustjóri ósáttur við frumhlaup Veðurstofunnar – Bílaröð hefur myndast

Kristinn H. Guðnason
Sunnudaginn 12. nóvember 2023 13:30

Úlfar Lúðvíksson. Mynd: Skjáskot RÚV.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Úlfar Lúðvíksson, lögreglustjóri á Suðurnesjum, er ekki ánægður með tilkynningu Veðurstofunnar sem birtist fyrr í dag. Ítrekar hann að aðeins íbúum Þórkötlustaðahverfis, austast í Grindavík, verður hleypt heim til sín til að sækja nauðsynjar.

„Þessi aðgerð er mjög takmörkuð. Ég hef fréttir af því að fólk sé farið að safnast. Þessar upplýsingar sem má lesa af heimasíðu Veðurstofunnar eru óheppilegar. Þetta ekki það sem við viljum sjá. Ég minni á og ítreka að fyrstu fréttir varðandi atriði sem þessi koma frá Almannavörnum,“ sagði Úlfar í aukafréttatíma RÚV í dag.

Svigrúm til að sækja

Veðurstofan greindi frá því klukkan 11:30 að mat vísindamanna væri það að svigrúm væri til tímabundinna aðgerða til að sækja nauðsynja.

„Það var sameiginlegt mat fundarins út frá nýjustu gögnum að svigrúm sé til tímabundinna aðgerða á vegum almannavarna til að sækja nauðsynjar fyrir íbúa og sinna brýnum erindum í Grindavík og nágrenni. Á meðan að á þeim aðgerðum stendur verður vakt svæðisins aukin og fylgst náið með merkjum um hvort að kvika komi upp. Það var mat vísindamanna eða ráðlegt væri að hefja þessar aðgerðir strax þar sem óvissa um framvindu atburðarins vex eftir því sem líður á daginn,“ sagði í tilkynningu Veðurstofunnar.

Mikill fjöldi bíla hefur safnast við lokunarpóstana. Þetta eru Grindvíkingar sem bíða þess að fá að komast heim til að ná í eigur sínar.

Aðeins Þórkötlustaðahverfi

Rúmum klukkutíma síðar, eða tæplega 13:00 kom tilkynning frá lögreglunni um að aðeins íbúum í Þórkötlustaðahverfi yrði leyft að sækja nauðsynjar. En það er fámennt og dreifbýlt hverfi austast í Grindavík.

Einn úr hverri fjölskyldu má fara og verður fylgt að heimili sínu. Aðeins má taka það allra nauðsynlegasta og tíminn er áætlaður 5 mínútur á íbúa.

„Öðrum íbúum Grindavíkur verður ekki heimilt að fara inn í bæinn.  Þetta er staðan í dag og næstu klukkutíma.   Að svo stöddu er ekki svigrúm til að fara inn í önnur hverfi bæjarins,“ segir í tilkynningu lögreglu.

Ekki á eigin bílum

Skömmu seinna barst tilkynning frá Almannavörnum þar sem þetta var ítrekað.

„Við ítrekum við aðra íbúa að keyra alls EKKI í átt að Grindavík og ekki safnast saman á lokunarpóstum. Íbúar í Þórkötlustaðahverfi sem fá að fara inn til Grindavíkur fara ekki þangað á eigin bílum. Íbúar sem fá að fara inn í til Grindavíkur eiga að koma á söfnunarstaðinn sem er bílastæðið við gossvæðið, við Fagradalsfjall. Ekki er heimilt að aka í gegnum Grindavíkurbæ, því þarf að koma um Suðurstrandarveg að austan eða frá Þorlákshöfn eða Krýsuvíkurvegi. Frá söfnunarstað verður ekið í bílum viðbragðsaðila inn í bæinn.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Stunguárásin í Mjódd – „Þetta er eitthvað sem mun marka mig fram að ævilokum“

Stunguárásin í Mjódd – „Þetta er eitthvað sem mun marka mig fram að ævilokum“
Fréttir
Í gær

Auðmaðurinn Jóhann búinn að fá nóg af skattheimtu ríkisins – „Ég er korter frá því að flytja héðan“

Auðmaðurinn Jóhann búinn að fá nóg af skattheimtu ríkisins – „Ég er korter frá því að flytja héðan“
Fréttir
Í gær

Gullgrafaraæði á bílastæðamarkaði: FÍB áætlar að tekjurnar hafi verið svona háar í fyrra

Gullgrafaraæði á bílastæðamarkaði: FÍB áætlar að tekjurnar hafi verið svona háar í fyrra
Fréttir
Í gær

Hinn 11 ára gamli Pétur er fundinn í Orlando – Móðursystir hans segir það búðarstarfsmanni að þakka

Hinn 11 ára gamli Pétur er fundinn í Orlando – Móðursystir hans segir það búðarstarfsmanni að þakka
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Stórleikarinn í dramatískri opinberri deilu við fyrrum ástkonu

Stórleikarinn í dramatískri opinberri deilu við fyrrum ástkonu
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Fimmtug kona ákærð fyrir ofbeldi í Leifsstöð

Fimmtug kona ákærð fyrir ofbeldi í Leifsstöð