Landsréttur hefur mildað dóm yfir meindýraeyðinum Árna Loga Sigurbjörnssyni fyrir stórfellt vopnalagabrot. Héraðsdómur Norðurlands eystra dæmdi Árna í tíu mánaða skilorðsbundið fanglesi en Landsréttir breytir refsingunni í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi.
Ákæran á hendur Árna kom í kjölfar húsleitar á heimili hans þar sem gerðir voru upptækir yfir 200 munir, skammbyssur, haglabyssur, rifflar og byssuskot. Vopnin sem fundust á heimili Árna eru skráð en í ákæru er tilgreint að ekki hafi verið gengið frá þeim með lögmætum hætti, þ.e. þau voru ekki öll geymd í læstum hirslum. Ennfremur var Árna gefið að sök að hafa haft í vörslu sinni vopn sem tilheyra öðrum án þess að hafa tilkynnt um móttöku skotvopna til viðgerða eða hafa skriflega lánsheimild frá eigendum skotvopnanna.
Árni er um sjötugt og hefur starfað sem meindýraeyðir frá árinu 1979. Hann er þekktur byssusafnari og byssuviðgerðarmaður. Árni býr einn á sveitabæ í Öxafirði sem er í klukkustundar fjarlægð frá næstu byggð.
DV hefur ekki náð sambandi við Árni í kjölfar dómsuppsögunnar í Landsrétti en hann ræddi þetta mál við DV í september 2022. Þar kom fram að húsleitin hafi komið til vegna tilefnislausrar kæru á hendur honum fyrir kynferðisbrot.
„Það var kona sem með aðstoð sonar síns, sem er lögreglumaður á Akureyri, sakaði mig um að hafa byrlað henni ólyfjan, nauðgað henni og misþyrmt henni hrottalega.“ Árni staðhæfir að konan hafi spunnið upp sögu um þetta og gefin hafi verið út handtökuskipun á hann vegna kærunnar þann 1. febrúar 2022. Hann hafi hins vegar ekki verið handtekinn fyrr en upp úr klukkan fjögur aðfaranótt 2. febrúar 2022 þar sem vitað var að hann myndi keyra fólk á þorrablót í Ásbyrgi um kvöldið en Árni er vinsæll þorrablótsbílstjóri þar sem hann drekkur ekki áfengi sjálfur.
Í dómnum kom fram að húsleit hefði verið framkvæmd vegna annars máls sem hafi verið fellt niður. „Ég vissi ekki um hvað þeir voru að tala um þegar ég var handtekinn. Þeir fara svo með mig heim í Öxarfjörð og gera húsleit. Sængurfötin mín voru send til Svíþjóðar. Rannsóknin leiddi í ljós að engin merki voru um að konan hefði verið heima hjá mér,“ sagði Árni við DV í fyrra.
Málsvörn Árna fólst meðal annars í því að enginn hafi getað haft aðgang að byssunum nema hann sjálfur þó að hann hefði ekki geymt þær í læstri hirslu, þar sem hann býr afskekkt og enginn kom á heimili hans án þess að hann væri staddur þar sjálfur. Þessari málsvörn var hafnað af bæði Landsrétti og héraðsdómi.
Dóminn má lesa hér.