Ekstra Bladet og B.T. skýra frá þessu og segja að þetta sé bíll sem var í eigu 32 ára karlmanns sem situr nú í gæsluvarðhaldi vegna Filippa málsins svokallaða. Það mál snerist um hvarf hinnar 13 ára Filippa nýlega. Hún fannst eftir um sólarhringsleit á heimili mannsins. Hann hafði numið hana á brott og haldið fanginni heima hjá sér og nauðgað ítrekað.
Fljótlega eftir að hann var handtekinn vöknuðu spurningar um hvort hann tengist hugsanlega máli Emilie Meng sem var myrt 2016, ekki langt frá þeim stað sem Filippa hvarf frá. Lögreglan hefur staðfest að hún sé að rannsaka hvort maðurinn tengist máli Emilie.
Þegar það mál var til rannsóknar á sínum tíma lýsti lögreglan eftir silfurgrárri Hyundai i30 bifreið sem sást bregða fyrir á upptöku eftirlitsmyndavélar lestarstöðvarinnar í Korsør en þar sást Emilie síðast á lífi. Ökumaður bílsins gaf sig aldrei fram og lögreglan hafði aldrei upp á bílnum, fyrr en hugsanlega nú.
Danskir fjölmiðlar hafa fjallað mikið um bæði málin að undanförnu en þau hvíla bæði mjög þungt á þjóðinni. Nú hefur dönsku lögreglunni sem sagt tekist að hafa uppi á bíl mannsins í Slóvakíu og leggja hald á hann. Hann var skráður altjónaður 2021 og var seldur til bílapartasala. En hann var greinilega ekki settur í brotajárn, heldur gert við hann og seldur áfram til fjölskyldu í Slóvakíu.
Í síðustu viku sgaði Mai-Britt Storm Thygesen, lögmaður fjölskyldu Emilie Meng, í samtali við B.T. að gríðarlega mikil ábyrgð hvíli á lögreglunni að rannsaka allt sem tengist máli hennar og að upplýsingarnar um að hinn handtekni hafi átt Hyundai i30 verði að rannsaka ofan í kjölinn. „Það verður að beita öllum ráðum,“ sagði hún.
Það er einmitt það sem lögreglan virðist hafa gert og þannig haft uppi á bílnum.