fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
Fréttir

Víðs vegar varað við vondu veðri

Máni Snær Þorláksson
Laugardaginn 24. september 2022 17:29

Myndin tengist fréttinni ekki beint. Mynd: Pjetur

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Óvissustigi hefur verið lýst yfir á Norðurlandi eystra, Norðurlandi vestra og á Austurlandi vegna veðursins sem spáð er á morgun, sunnudaginn 25. september. Í dag hefur mikið verið fjallað um veðrið sem er yfirvofandi en lögreglan hefur nú birt færslur á Facebook-síðum sínum til að vekja sérstaklega athygli á því.

„Á vef veðurstofunnar kemur fram að í dag (laugardag) mun hvessa, suðvestan hvassviðri eða stormur undir kvöld. Því fylgja snarpar vindhviður. Í fyrramálið má gera ráð fyrir að vindur snúist í norðvestan 15-23 m/s í fyrramálið með slyddu og/eða snjókomu til fjalla. Undir kvöld á að stytta upp,“ segir til að mynda í færslu lögreglunnar á Norðurlandi eystra.

Lögreglan vill því biðja fólk um að huga að lausamunum eins og trampolínum, garðhúsgögnum og svo framvegis. „Þá viljum við einnig biðja verktaka að huga að framkvæmdasvæðum, girðingum, krönum og öðrum lausamunum og tryggja að allt sé vel fest.“

Fólk sem hefur í hyggju að ferðast á milli landshluta er bent á að hálka getur verið á heiðum. „Lögregla ráðleggur fólki að fylgjast vel með veðri og fresta ferðum þar til veðrið hefur tekið að skána.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Gamlir geisladiskar nýttir í tölvuframleiðslu

Gamlir geisladiskar nýttir í tölvuframleiðslu
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Þrír forsetaframbjóðendur bera af á samfélagsmiðlum – Þetta eru tölurnar

Þrír forsetaframbjóðendur bera af á samfélagsmiðlum – Þetta eru tölurnar
Fréttir
Í gær

Blöskrar fréttaflutningur af minnkandi spilakassatekjum -„Þarna sýndi Rauði krossinn sitt rétta andlit frammi fyrir alþjóð“

Blöskrar fréttaflutningur af minnkandi spilakassatekjum -„Þarna sýndi Rauði krossinn sitt rétta andlit frammi fyrir alþjóð“
Fréttir
Í gær

Segir ekki einn heldur tvo frambjóðendur hafa skuldað sér áratugum saman – „Ef þeir gera upp við mig þá fyrirgef ég þeim að sjálfsögðu“

Segir ekki einn heldur tvo frambjóðendur hafa skuldað sér áratugum saman – „Ef þeir gera upp við mig þá fyrirgef ég þeim að sjálfsögðu“