fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fréttir

Sakar Bjarna Ben um rasisma – „Við vitum að mútur voru greiddar“

Erla Hlynsdóttir
Föstudaginn 24. júní 2022 17:52

Skjáskot af The Villager og Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Namibíska dagblaðið The Villager fjallar um þær áhyggjur sem yfirmaður vinnuhóps OECD gegn mútum hefur af vinnubrögðum á Íslandi þegar kemur að rannsókn á Samherjamálinu.

Blaðið fjallar um þetta í forsíðufrétt sem birtist í fyrradag undir yfirskriftinni „Fishrot handling by Iceland is embarassing: OECD“ eða „Vandræðalegt hvernig Ísland tekur á Samherjamálinu: OECD“ en málið er þekkt sem Fishrot í öðrum löndum.

Drago Kos, yfirmaður vinnuhóps OECD gegn spillingu, segir að það sé vandræðalegt fyrir Ísland að það sé Namibía sem dragi vagninn í málinu og að þetta komi illa út fyrir íslensk stjórnvöld.

Blaðið vitnar einnig í viðtal við Atla Þór Fanndal, framkvæmdastjóra Íslandsdeildar Transparency International, á Eagle FM í Namibíu vegna málsins. Hægt er að hlusta á viðtalið hér neðst.

Ísland í aðalhlutverki

Atli segir þar að Ísland sé í aðalhlutverki í málinu og það sé íslenskt fyrirtæki sem sé sakað um mútugreiðslur. „Við vitum að mútur voru greiddar í Namibíu og Angóla,“ segir hann.

Þá kom hann einnig inn á heimsókn utanríkisráðherra Namibíu, Netumbo Nandi-Ndaitwah, til Íslands á dögunum en meðal þess sem hún ræddi við íslenska ráðamenn var mögulegt framsal íslenskra einstaklinga til Namibíu vegna Samherjamálsins.  Ísland og Namibía eru ekki með tvíhliða framsalssamning sín á milli en bæði ríkin eru aðilar að samingi Sameinuðu þjóðanna gegn spillingu og í 44. grein samningsins er gerð grein fyrir framsali milli aðildarríkja, jafnvel án tvíhliða framsalssamning.

Enginn blaðamannafundur

Atli sagði hins vegar í viðtalinu að það hefði komið honum á óvart hversu mikil leynd hafi verið yfir fundum namibískra ráðamanna með þeim íslensku fyrr í þessum mánuði. Hann hafi vonast til þess að íslensk yfirvöld myndu boða til blaðamannafundar þar sem hægt væri að spyrja spurninga, en það hafi ekki verið gert. Engu að síður hafi heimsóknin verið jákvætt skref.

Hann hefur hins vegar áhyggjur af því að ekkert verði af umræddu framsali enda hafa íslenskir ráðamenn lagst hart gegn því og hreinlega haldið fram að engar heimildir séu til þess. Framsalið sé hins vegar mikilvægt fyrir rannsókn málsins sem er í fullum gangi í Namibíu.

„Gríðarleg pólitísk áhrif á Íslandi“

Atli segir að Samherji hafi „gríðarleg pólitísk áhrif á Íslandi“ og hafi til að mynda notað aflsmuni sína gegn Seðlabanka Íslands.

Þá er rifjað upp að þegar upp komst um Samherjamálið hafi fjármálaráðherra Íslands, Bjarni Benediktsson, sagt að vandamálið væri „veikburða og spillt stjórnvöld í Namibíu.“

Atli segir hins vegar að þessi umæli Bjarna séu „furðulega heimskuleg“ og sýni einfaldlega rasisma og skilningsskort af hálfu ráðherrans. Hann segir að því sé oft haldið fram á Íslandi að spilling geti vissulega skolað hér á strendur en hún sé aldrei heimatilbúin.

Furðu lostinn

Þá vísar The Villager í íslenska fjölmiðla þar sem kemur fram að Drago Kos sé furðu lostinn yfir því að embætti héraðssaksóknara sé undirfjármagnað í efnuðu landi eins og Ísland er.

„Stjórnvöld þurfa að finna fjármagn og útvega skrifstofu héraðssaksóknara allt sem þar til að hægt sé að ljúka málinu sem fyrst,“ segir Kos.

Í lok greinar bendir The Villager á að Samherjamálið sé stærsta spillingarmál sem hefur komið upp í landinu frá því Namibía öðlaðist sjálfstæði og hefur það leitt til þess að saksókn hafi farið í gang gegn hátt settum viðskiptamönnum, lögmenn hafi blandast í málið auk þess sem tveir ráðherrar hafi þegar sagt af sér.

Hér má hlusta á viðtalið við Atla Þór á Eagle FM.

video
play-sharp-fill
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Spáir ekki dropa úr lofti í Reykjavík fyrr en í maí – Sumarið lítur sérstaklega vel út

Spáir ekki dropa úr lofti í Reykjavík fyrr en í maí – Sumarið lítur sérstaklega vel út
Fréttir
Í gær

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Íbúar brjálaðir út í Hafnarfjarðarbæ: „Þetta er til háborinnar skammar og engin lausn“

Íbúar brjálaðir út í Hafnarfjarðarbæ: „Þetta er til háborinnar skammar og engin lausn“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Réðst á dreng sem ætlaði að gera dyraat

Réðst á dreng sem ætlaði að gera dyraat
Hide picture