fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Hunsaði fyrirmælin og hringdi heim – „Við fengum allir leyfi til að láta slátra okkur“

Kristján Kristjánsson
Fimmtudaginn 29. desember 2022 05:58

Rússneskir málaliðar í Bakhmut. Skjáskot/Twitter

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rússneskur hermaður hunsaði fyrirmælin sem honum og öðrum hermönnum höfðu verið gefin og hringdi í mömmu sína. Hann er ekki einn um að hafa gert þetta því fjöldi rússneskra hermanna hefur hringt heim frá vígstöðvunum þrátt fyrir að það sé bannað.

„Enginn lætur okkur fá mat lengur mamma. Birgðirnar okkar eru ónothæfar í hreinskilni sagt. Við náum í vatn í polla og síum það og drekkum.“

Þetta sagði rússneskur hermaður, sem var staddur í Lyman í Úkraínu, þegar hann hringdi í móður sína.

The Guardian segir að hermaðurinn, Andrey að nafni, hafi hunsað fyrirmæli yfirmanna sinna um að nota ekki símann sinn. Hann hringdi því í móður sína klukkan 15.10 þann 8. nóvember.

Hann er ekki eini hermaðurinn sem hefur hunsað þessi fyrirmæli og hringt heim.

Ástæðan fyrir símabanninu er að Úkraínumenn fylgjast vel með fjarskiptum og geta notfært sér símtölin.

The Guardian hefur komist yfir upptökur af fjölda símtala af þessu tagi og varpa þær ljósi á það sem rússnesku hermennirnir upplifa á vígvellinum.

Í einu þeirra ræðir hermaður við eiginkonu sína. „Ég sef í gegnblautum svefnpoka. Hósta og er algjörlega í steik. Við fengum allir leyfi til að láta slátra okkur,“ sagði hann við eiginkonuna og bætti við að hann neyðist til að flýja frá herdeild sinni og væri að íhuga að gefast upp fyrir Úkraínumönnum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 3 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”