Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur lýst eftir Kristjáni Geir Valentin Ólafssyni. Kristján er 24 að aldri, um 175 sm á hæð, þáttvaxinn með dökkt, stutt hár.
Kristján var klæddur í svarta hettupeysu, gráar íþróttabuxur og svarta strigaskó. Hann er með húðflúr á höndum og víðar.
Síðast er vitað um ferðir hans í Reykjavík í gær, fimmtudag.
Þau sem geta gefið upplýsingar um ferðir hans eða vita hvar hann er að finna, eru vinsamlegast beðin um að hafa tafarlaust samband við lögregluna í síma 112.