fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Fréttir

Óvenju mikið um hóstandi hunda – Matvælastofnun rannsakar smitandi öndunarfærasýkingu

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 11. janúar 2022 09:01

Schnauzer hundur - Mynd: Pixabay

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Matvælastofnun hefur nýlega fengið tilkynningar um að á höfuðborgarsvæðinu hafi undanfarið verið, óvanalega mikið um hóstandi hunda og lítur út fyrir að um sýkingu sé að ræða sem berst auðveldlega og hratt milli hunda.

Frá þessu er greint á vef Matvælastofnunar en þar kemur fram að stofnunin hefur í samvinnu við Tilraunastöð Háskólans að Keldum sett af stað rannsóknarverkefni til að reyna að finna út úr því hvað gæti verið að valda þessum hósta. Hundarnir virðast vera á öllum aldri og ýmist bólusettir eða óbólusettir. Sumir hafa verið á hundahótelum eða vinsælum hundasvæðum, aðrir ekki. Flestir verða ekki mikið veikir og ná sér á nokkrum dögum.

Smitandi öndunarfærasýking er þekkt hjá hundum og kallast oft í daglegu tali hótelhósti – kennel cough á ensku. Hótelhósti er í raun lýsing á sjúkdómseinkennum í efri öndunarvegi, og margvísleg smitefni geta legið að baki, bæði veirur og bakteríur sem þá valda einkennum frá efri öndunarvegi svo sem hósta, og útferð úr nefi og augum, en í sumum tilfellum einnig slappleika og lystarleysi. Einkennunum getur svipað til þess að aðskotahlutur, t.d. flís eða strá hafi fests í hálsi hundsins.

Öndunarfærasýkingar eru oft bráðsmitandi af því að smit getur borist með loftögnum við hósta og hnerra. Þarf því ekki beina snertingu, en auðvitað getur smit líka verið í munnvatni og útferð úr nefi og augum.

Flestir hundar fara í gegnum veikindin á nokkrum dögum, án þess að verða alvarlega veikir. En einstaka hundar geta orðið veikari, og þá hefur oft orðið meiri sýking af öðrum bakteríum sem hafa „notað tækifærið“ þegar mótefnakerfi hundsins var ekki upp á sitt besta. Getur hundurinn þá fengið einkenni lungnabólgu svo sem hækkaðan hita og erfiðleika við öndun. Hundum með einkenni, jafnvel þó lítil séu, ætti að forða frá mikilli áreynslu og hlaupum.

Ef hundar verða mjög slappir eða fá hækkaðan hita, sem þýðir yfir 39,2°C (eðilegur líkamshiti hunda er 38-39°C) þá er rétt að leita til dýralæknis með hundinn til skoðunar og til að meta alvarleika. Einhverjir hundar geta þurft stuðningsmeðhöndlun. Það er hinsvegar mjög mikilvægt að hringja á undan sér og geyma hundinn úti í bíl á meðan tilkynnt er um komu í mótttöku til að forðast að smita önnur dýr inni á dýralæknastofunni.

Mjög margir hundar hér á landi eru bólusettir. Grunnbóluefnið inniheldur vörn gegn alvarlegum sjúkdómum eins og hundafári og lifrarbólgu, en einnig smáveirusótt og algengustu veirunum sem valda hótelhósta. Til að bóluefnið gegn hótelhósta virki þarf að bólusetja árlega, en hinir þættirnir virka lengur. Dýralæknar greina frá því að jafnt bólusettir sem óbólusettir hundar virðast smitast af þessari sýkingu sem er núna í gangi. Vert er að hafa í huga að það eru til aðrar veirur og bakteríur sem einnig geta valdið smitandi öndundarfærasjúkdómi (hótelhósta), sem er ekki varist með þeim grunnbóluefnum sem eru í notkun.

Þessvegna hefur Matvælastofnun í samvinnu við Tilraunastöð Háskólans að Keldum sett af stað rannsóknarverkefni til að reyna að finna út úr því hvað gæti verið að valda þessum hósta. Nú þegar hafa nokkrir dýralæknar sent sýni til að kanna hvort um gæti verið að ræða veiruna sem veldur Covid-19, en það hefur allt verið neikvætt. En það verða tekin stroksýni úr hálsi og útferð úr nefi, til almennar sýklaræktunar, ásamt blóðsýni til að reyna að finna út úr hvað valdi. Það verður skoðað t.d. hvort um geti verið að ræða þekktar bakteríur svo sem Bordetella bronchiseptica eða Streptococcus zooepidemicus som olli hósta og veikindum hjá hrossum hér á landi fyrir nokkrum árum.

Haustið 2017 fór um landið eins og eldur í sinu, smitandi öndunarfærasýking þar sem hnerri var ríkjandi einkenni, en ekki hósti eins og algengast er. Sú pest lagðist bæði á hunda og ketti, en ekki tókst að finna smitefnið þrátt fyrir margar sýnatökur og leit að veirum eða bakteríum sem þekkt er að valdi öndunarfæraeinkennum.

Til að minnka líkur á smiti í fríska hunda er rétt að gæta smitvarna, sérstaklega forðast nálægð við hunda með einkenni og síður að vera með hunda þar sem margir aðrir hundar koma saman, eins og t.d. á vinsælum hundaviðrunarsvæðum

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Bongóblíða á landinu í dag og sumarið handan við hornið

Bongóblíða á landinu í dag og sumarið handan við hornið
Fréttir
Í gær

Úkraínumenn skutu rússneska sprengjuflugvél niður – Getur þvingað Rússa til breytinga

Úkraínumenn skutu rússneska sprengjuflugvél niður – Getur þvingað Rússa til breytinga