fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fréttir

Stjórnendur Hinsegin daga höfnuðu þátttöku lögreglunnar í hátíðarhöldunum: „Þetta urðu mér auðvitað viss vonbrigði“

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 5. júlí 2022 13:37

Fjölnir Sæmundsson, formaður Landsambands lögreglumanna. Mynd/Ernir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fjölnir Sæmundsson, formaður Landssambands lögreglumanna, segist hafa orðið fyrir vonbrigðum með dræmar undirtektir aðila sem starfa að málefnum hinsegin fólks um þá hugmynd hans að stéttarfélag lögreglumanna myndi leggja sitt að mörkum til réttindabaráttu hinsegin fólks í samfélaginu.

Þetta kemur fram í aðsendri grein Fjölnis sem birtist á Vísi fyrir stundu. Í greininni lýsir Fjölnir því að hann hafi spurst fyrir hjá stjórnendum Hinsegin daga um þátttöku lögreglunnar í hátíðarhöldunum, sem fara fram 2 – 7. ágúst næstkomandi, en strax orðið var við tortryggni gagnvart hugmyndinni. Honum hafi verið vel tekið en síðan verið tjáð að þátttaka félags sem tengdist lögreglunni yrði eflaust illa séð innan hinsegin samfélagsins.

„Þetta urðu mér auðvitað viss vonbrigði því líkt og áður segir sá ég þetta sem tækifæri til þess að veita hinsegin lögreglumönnum aukin stuðning og gera þá betur sýnilega innan lögreglunnar. Ég tel að þessi aukni sýnileiki gæti hjálpað mikið til í samfélagsumræðunni og við að útrýma fordómum. Margir virðast líta á lögregluna sem mjög einsleitan hóp sem er auðvitað ekki rétt heldur starfar þar fjölbreytur hópur fólks með mismunda kyn, kynhneigð, þarfir og langanir. Það eru mér auðvitað líka vonbrigði að hópur hinsegin fólks í samfélaginu skuli líta á lögregluna sem einhverskonar andstæðing sinn,“ skrifar Fjölnir.

Hélt að tímarnir væru breyttir

Í greininni segist Fjölnir að auðvitað sé hann hvorki blindur né gleyminn og viti því að mjög víða í samfélaginu hafa á síðustu árum og áratugum verið fordómar gagnvart hinsegin fólki, bæði hjá ýmsum ríkisstofnunum og hjá einstaklingum í samfélaginu og því megu telja fullvíst að líka hafi verið fordómar meðal sumra lögreglumanna í gegnum tíðina. Hann hafi þó í einfeldni sinni talið sér trú um að þeir tímar væru liðnir og að samskipti lögreglu við hinsegin fólk undanfarin ár hefðu ekki gengið verr né betur en við aðra borgara landsins.

„Þó ég sé ekki í stöðu til þess að lofa því þá er ég alveg sannfærður um að stjórnendur lögreglunnar í dag eru tilbúnir að biðjast afsökunar á framferði lögreglunnar þegar hún hefur brotið á fólki vegna kynhneigðar þess. Til þess að græða slík sár mætti til dæmis safna slíkum sögum saman til að læra af þeim og fá þá sem telja að brotið hafi verið á til að segja sína sögu. Fyrir slíku fyrirkomulagi eru nokkur fordæmi hér innanlands og erlendis,“ skrifar Fjölnir.

Hann segir að það sé ungu fólki nauðsynlegt að eiga fyrirmyndir á sem flestum sviðum samfélagsins og því telji hann mjög mikilvægt fyrir ungt hinsegin fólk að vita að innan lögreglunnar starfi fjöldi hinsegin fólks og að þau geta fundið sínar fyrirmyndir þar.

„Mér finnst áríðandi að koma því á framfæri að lögreglan er fyrir alla. Öll eiga að fá sömu þjónustu hjá lögreglunni óháð kyni eða kynhneigð og öll eiga að geta starfað innan lögreglunnar óháð kyni eða kynhneigð. Lögreglumenn er sú starfstétt sem á að tryggja að farið sé að lögum og að lýðræði og mannréttindi séu virt í hvívetna í samfélaginu öllu. Það er einlæg von mín og trú að hinsegin samfélagið og lögreglan taki höndum saman í baráttunni fyrir jafnara samfélagi þar sem hinsegin fólk nýtur nákvæmlega sömu viðhorfa og þjónustu allir aðrir, bæði innan lögreglunnar og út í samfélaginu,“ skrifar Fjölnir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Einingaverksmiðjan og Rafmennt unnu til verðlauna á Verk og vit 

Einingaverksmiðjan og Rafmennt unnu til verðlauna á Verk og vit 
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“