Mamuashvili er yfirmaður georgísku herdeildarinnar sem lýtur stjórn úkraínska hersins. Í þessari herdeild eru aðallega útlendingar en Mamuashvili stofnaði hana 2014 þegar átök brutust út í austurhluta Úkraínu.
Hann sagði að 70 til 80% af útlendu sjálfboðaliðunum hafi viðkomu í herdeild hans en aðeins 1 af hverjum 10 sé í henni til frambúðar því herdeildin vilji hermenn með reynslu af bardögum. Hinir fara í alþjóðlegu herdeildina.
Bretar eru næstfjölmennastir erlendra sjálfboðaliða sem berjast með Úkraínumönnum eða um 3.000. Aðeins Georgíumenn eru fleiri. Þriðji fjölmennasti hópurinn er frá Bandaríkjunum.