Í Fréttablaðinu í dag er rætt við Olenu Jadallah, sem flúði stríðsátök í Úkraínu og kom til Íslands í febrúar. Olena bíður þess að hún og fjölskylda hennar fái alþjóðlega vernd en maður hennar er frá Palestínu.
Olena hefur ýmislegt að segja um aðbúnað og móttöku flóttafólks á Íslandi og hún minnist harkalegs atviks frá Hótel Sögu.
„Við vorum í fyrstu á Hótel Sögu en svo einn morguninn þá er bankað á hurðina og okkur sagt að við eigum að fara á Ásbrú,“ segir Olena og segir að á þessum tímapunkti hafi maðurinn hennar ekki verið í herberginu og börnin bæði sofandi.
„Við sögðum þeim að við vildum ekki yfirgefa hótelið. Við vildum fá að fara daginn eftir,“ segir hún. Viðbrögð starfsfólks voru að kalla til lögreglu sem flutti þau nauðug burtu. Olena segir um þetta:
„Ég var í áfalli. Ég var með svo mikinn farangur sem ég átti eftir að pakka og svo börnin. Þau vöknuðu auðvitað við þetta. Við hefðum getað verið tilbúin. Við vorum mjög hissa á þessum viðbrögðum og viðhorfum starfsfólksins.“