Þetta sagði Sergiy Kyslysys, sendiherra Úkraínu hjá Sameinuðu þjóðunum, á fundi öryggisráðsins um stríðið í Úkraínu.
Dagbladet segir að hann hafi ekki verið feiminn við að gagnrýna Pútín í ræðu sinni. Hann sagði meðal annars að erfitt sé að átta sig á árásargirni Pútíns og vísaði í grein sem Pútín skrifaði í The New York Times 2013 þar sem hann sagði meðal annars: „Lög eru lög, óháð því hvort okkur líkar við þau eður ei.“ Í greininni lagði Pútín áherslu á að „í samræmi við gildandi alþjóðarétt er valdbeiting aðeins heimil í sjálfsvörn eða með heimild frá öryggisráði SÞ. Allt annað er óásættanlegt.“
Kyslytsya sagði að núna, níu árum eftir að þessi grein var skrifuð, sé hægt að halda að hinn gamli Pútín, þessi sem skrifaði fyrrnefnda grein, myndi telja innrásina í Úkraínu „allt annað en ásættanlega“.