fbpx
Fimmtudagur 12.desember 2024
Fréttir

Sjálfvirk vöktun í mannlausum verslunum

Ritstjórn DV
Mánudaginn 9. maí 2022 13:52

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Öryggismiðstöðin og NÆR matvöruverslanir hafa gert með sér samstarfssamning um öryggislausnir í nýjar mannlausar verslanir.

Matvöruverslanir NÆR eru fyrstu ,,kláru“ matvöruverslanir á Íslandi. Þar er enga afgreiðslukassa né afgreiðslufólk að finna heldur fara kaupin alfarið í gegnum snjallsíma. Verslanir NÆR eru aðgangsstýrðar með þeim hætti að viðskiptavinir skanna QR kóða úr appi í snjallsíma til að komast inn og byrja að versla. Viðskiptavinir skanna vörur í gegnum appið sem fara í körfu viðkomandi og greiða körfuna í gegnum appið, í fyrstu með því að skrá kortaupplýsingar í appinu en síðar meir verður hægt að greiða með Apple Pay og Google Pay.

Verslanir NÆR verða fyrst og fremst hverfisverslanir, staðsettar á þéttbýlum svæðum á höfuðborgarsvæðinu til að byrja með og verða þær opnar allan sólarhringinn, alla daga ársins þökk sé tækninýjungum.

Öryggismiðstöðin sér um tæknilegar lausnir fyrir aðgengi fyrir viðskiptavini NÆR ásamt þjónustu og umsjón með myndeftirliti verslana þar sem notast er við nýjustu tækni. Öryggiskerfi og myndeftirlitskerfi eru vöktuð með sjálfvirkum hætti í rauntíma af stjórnstöð Öryggismiðstöðvarinnar sem bregst við frávikum og aðvörunum sem frá eftirlitskerfinu berast. Stjórnstöð Öryggismiðstöðvarinnar er einnig opin allan sólarhringinn eins og ,,kláru“ matvöruverslanir NÆR.

„Við erum mjög spennt fyrir samstarfinu í heild sinni og hlökkum til að halda áfram að þróa og móta okkar nýjustu lausnir fyrir sjálfvirkar matvöruverslanir í náinni samvinnu við stjórnendur NÆR sem búa yfir mikilli þekkingu og sérhæfingu á þörfum slíkra verslana,“ segir Kristinn Loftur Einarsson, deildarstjóri sölu- og markaðssviðs Öryggismiðstöðvarinnar.

„Verslanir af þessum toga sjást í auknu mæli hjá nágrannaþjóðum okkar og hafa gefið góða raun. Samstarfið við Öryggismiðstöðina við þróun og samhæfingu öryggislausna hefur verið til fyrirmyndar og þekking þeirra og reynsla gerir þau að hárréttum aðilum til þess að vinna þetta með okkur,“ segir Þórður Örn Reynisson, framkvæmdastjóri NÆR ehf.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Henrietta segir foreldrajafnrétti stærsta jafnréttismálið – „Þetta misrétti hef ég upplifað á eigin skinni“

Henrietta segir foreldrajafnrétti stærsta jafnréttismálið – „Þetta misrétti hef ég upplifað á eigin skinni“
Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Tók meira en tvö ár að fá svör frá Reykjavíkurborg

Tók meira en tvö ár að fá svör frá Reykjavíkurborg
Fréttir
Í gær

Leita að einstaklingi í Tálknafirði sem hefur ekki náðst í um tíma

Leita að einstaklingi í Tálknafirði sem hefur ekki náðst í um tíma
Fréttir
Í gær

Læknar vara við því að vinsælar olíur geti verið að valda mikilli aukningu krabbameins í ungu fólki

Læknar vara við því að vinsælar olíur geti verið að valda mikilli aukningu krabbameins í ungu fólki
Fréttir
Í gær

Talaði Trump af sér?

Talaði Trump af sér?
Fréttir
Í gær

Pólski forsætisráðherrann segir að friðarviðræður hefjist hugsanlega í vetur

Pólski forsætisráðherrann segir að friðarviðræður hefjist hugsanlega í vetur