Samiðn, Samband iðnfélaga, sendi á dögunum skriflegar spurningar til þeirra stjórnmálaflokka sem bjóða sig nú fram til þings um stefnu þeirra í málum sem snúa að iðnaðarsamfélaginu.
Spurningarnar snúa m.a. að löggildingu iðngreina, hvernig bregðast eigi við aukinni aðsókn í iðnnám og hvaða aðgerða eigi að grípa til til að tryggja atvinnustig iðnmenntaðra í nánustu framtíð.
Hilmar Harðarson, formaður Samiðnar, segist heilt yfir vera ánægður með svörin frá stjórnmálaflokkunum sem styðja löggildingu iðngreina og eflingu iðnnáms. ,,Þau gefa vísbendingu um hvað koma skal, hver stefna og vilji stjórnmálaflokkana er í málum tengd iðngreinum og iðnaði almennt. Þetta eru allt málefni sem skipta iðnaðarmenn miklu máli og um stóran geira er að ræða. Það var einnig ánægjulegt að heyra að þeir lögðu allir áherslu á fjölbreytnina, sem er mikil í iðngreinum. Við fögnum þessum mikla stuðningi sem flokkarnir sýna okkur í iðnaðarsamfélaginu.“
Hilmar segir að flokkarnir séu almennt sammála um að viðhalda þurfi löggildingu iðngreina. „Það er mikilvægt að fólk geti fullvissað sig um að það sé að fá faglega þjónustu. Því fylgir bæði ábyrgð og gæði,“ segir Hilmar.
Hilmar segir að svör hafi borist frá Sjálfstæðisflokknum, Samfylkingunni, Vinstri grænum, Framsóknarflokknum, Pírötum og Viðreisn. Nánar má sjá svör stjórnmálaflokkanna við spurningum á heimasíðunni samidn.is.