Kaup á fasteigninni Minna-Mosfelli 2 í hinum fagra Mosfellsdal sem gerð voru árið 2019 urðu að sorgarsögu í kjölfar þess að kaupendurnir gátu ekki innt af hendi lokagreiðslu upp á rúmlega 36 milljónir króna. Þess má geta að á jörðinni hefur um nokkurt skeið verið rekið myndarlegt gistiheimili sem hefur hlotið verðlaun og viðurkenningar.
Dómur féll í morgun í Héraðsdómi Reykjavíkur í máli seljenda jarðarinnar gegn kaupendunum. Seljendur og kaupendur gerðu með sér kaupsamning um fasteignina Minna-Mosfell 2 í janúar árið 2019. Kaupverðið var 185 milljónir króna og átti að greiðast með eftirfarandi hætti: 74 milljónir voru greiddar með fasteigninni Stórateigi 40 í Mosfellsbæ, 75 milljónir voru greiddar með lánum gegn skilyrtum veðleyfum og 36 milljónir áttu að greiðast með sölu á fasteigninni Byggðarholt 1d í Mosfellsbæ.
Um sumarið 2019 kom í ljós að kaupendurnir gátu ekki innt af hendi lokagreiðsluna, rúmlega 36 milljónir, vegna þess að þeim hafði ekki tekist að selja Byggðarholt. Þeim tókst þó að greiða 10 milljónir upp í þessa skuld en eftir stóðu rúmlega 26 milljónir.
Skemmst er fá því að segja að seljendur jarðarinnar stefndu kaupendunum fyrir dóm vegna þessara vanskila. Kaupendurnir gagnstefndu hins vegar seljendunum á grunni matsgerðar þar sem reifaðir voru ýmsir meintir gallar á fasteigninni. Var fundið að ástandi útishúsa, þ.e. fjóss og hlöðu, sem sögð voru ónýt svo þyrfti að rífa þau, og var meðal annars staðhæft að asbest-klæðning væri í lofti fjóssins. Þá var sagt að miklar skemmdir hefðu fundist í alifuglahúsi sem átti að vera endurnýjað og traust. Steinull í klæðningunni hefði verið skemmd vegna músagangs. Töldu kaupendurnir matsgerð sanna að stórvægilegir gallar hefðu verið á útihúsunum.
Þá hefði enn fremur verið músagangur á háalofti í íbúðarhúsi á jörðinni og framkvæmdir vegna gistiaðstöðu á efri hæð hússins hefðu verið ósamþykktar.
Vildu kaupendurnir fá greiddar 25 milljónir frá seljendunum ásamt dráttarvöxtum.
Skemmst er frá því að segja að kaupendur jarðarinnar Minna-Mosfell 2 gjörtöpuðu málinu fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Voru þau dæmd til að greiða um 26,5 milljónir króna, sem nemur vanskilunum á greiðslu kaupverðsins, auk dráttarvaxta. Þá þurfa kaupendurnir að greiða málskostnað seljendanna upp á 3 milljónir króna. Ótalinn er þá þeirra eigin málskostnaður.
Kröfum í gagnsökinni var hafnað og taldi dómurinn matsgerðina sem kaupendurnir studdust við vera gallaða.