fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fréttir

Bjarki var karlremba en nú er hann femínisti – „Þess vegna er ég femínisti“

Máni Snær Þorláksson
Þriðjudaginn 27. júlí 2021 12:00

Myndin er samsett.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ekkert „en…”, ekki neitt „nema…”, engir fyrirvarar eða skilyrðingar. Ég. Er. Femínisti.“

Svona hefst pistill sem Bjarki Eiríksson skrifar og birtist á Vísi. Bjarki titlar sig í pistlinum sem fyrrverandi karlrembu í bataferli en hann skipar 9. sæti á lista Viðreisnar í Suðurkjördæmi. Bjarki segist hafa í mörg ár ráfað í gegnum lífið haldandi að hann væri jafnréttissinni en alls ekki femínisti. „Svokallaðir „öfgafemínistar” fóru óheyrilega í taugarnar á mér og ég var alltaf tilbúinn í rifrildið við femínista um á hvaða ömurlegu villuráfandi, karlmannahatandi vegferð þær væru á. Já ég sagði ÞÆR því auðvitað gæti ekki einn einasti karlmaður með sjálfsvirðingu talið sig vera femínista,“ segir Bjarki í pistlinum. „Ó hve lítið sem ég vissi.“

Bjarki segir að hann hafi alltaf borið virðingu fyrir konum og viljað veg þeirra sem mestan og bestan. „Ég hef reitt hár mitt yfir kynbundnum launamun, hrútskýringum, kynferðisáreiti karla gegn konum og bara almennu misrétti kynjanna. Samt var ég ekki femínisti. Það var bara allt annar og verri málstaður, fullur annarlegra hvata, en sá að vilja jafnrétti kynjanna raungerast,“ segir hann.

„Umhverfi mitt, til dæmis vinnustaðir og fólk í kring um mig, eiga þátt í að hafa málað skoðanir mínar með litum eitraðrar karlmennsku og fáfræði. Þrátt fyrir að hafa ætíð aðhyllst gagnrýna hugsun þá holar dropinn steininn og ég trúði því statt og stöðugt að femínistabeljur vildu ekki jafnrétti, þær vildu sérréttindi, drottna yfir okkur karlpungunum sem þær hötuðu samt frá sínum innstu hjartarótum.“

„Hvernig í ósköpunum getur jafnrétti farið út í öfgar?“

Bjarki segir að eftir því sem árum hans á jörðinni fjölgar hefur honum borist gæfa til að þroskast í leiðinni. „Nú, eftir rétt rúma þrjátíuogsjö hringi í kring um sólina, hef ég loksins öðlast bæði þroska og kjark til þess að segja það fullum fetum að ég er femínisti og þann titil mun ég stoltur bera ævi mína á enda… og vonandi látið eitthvað gott af mér leiða sem slíkur.“

Hann segir að það að vera jafnréttissinni en ekki femínisti sé álíka gáfuleg fullyrðing og að segjast ekki vera rasisti en vera engu að síður ekkert vel við fólk af öðrum kynþætti en sínum eigin. „Þetta skil ég í dag og allt tal um „öfgafemínista“ finnst mér í besta falli hlægileg umræða því hvernig í ósköpunum getur jafnrétti farið út í öfgar?“

„Þess vegna er ég femínisti“

Bjarki talar þá um umræðuna sem hefur verið hér á landi undanfarnar vikur. „Í umræðu síðustu vikna um mál nokkurra landsþekktra íslenskra karlmanna þar sem þeir eru sagðir meintir gerendur í kynferðisbrotamálum virðist alltaf umræðan komast niður á svo lágt plan að þetta sé nú allt helvítis femínistunum að kenna. Málið er bara að það er ekki femínistum að kenna heldur þeim, og eingöngu þeim, sem brotin fremja,“ segir hann.

„Femínistar eru einungis barnið sem bendir á að keisarinn gangi um nakinn, hafa hugrekki til að láta í sér heyra og benda á það óréttlæti sem þolendur kynferðisbrota, sem í flestum tilfellum eru konur, upplifa ásamt því að hafa verið brotið á; að vera af samfélaginu úthrópaðar athyglissjúkar mellur og hórur fyrir það eitt að stíga fram og segja frá að þær hafi verið beittar ofbeldi.“

Bjarkis segir að þetta sé ástæðan fyrir því að hann er femínisti. „Þess vegna er ég femínisti, ég vil berjast með konum gegn óréttlæti, ég vil vera partur af lausninni en ekki vandamálinu. Ég vil fylkja liði í baráttu fyrir jafnrétti allra kynja og skapa samfélag sem einkennist af víðsýni, réttsýni og kærleik,“ segir hann.

Að lokum sendir hann körlum sem hafa átt erfitt með að lesa orð hans skilaboð. „Við þá karla sem nú þegar hafa ranghvolft augunum nokkra hringi við þennan lestur vil ég segja: Koma svo strákar! Uppfærum hugsunarháttinn eins og við uppfærum stýrikerfið í tölvunum okkar. Breytum staðalímyndum, bætum samfélagið. Verum femínistar. Hverju hafið þið eiginlega að tapa?“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Yfirmaður úkraínsku leyniþjónustunnar er með áætlun tilbúna til að mæta yfirvofandi stórsókn Rússa

Yfirmaður úkraínsku leyniþjónustunnar er með áætlun tilbúna til að mæta yfirvofandi stórsókn Rússa
Fréttir
Í gær

Grænkerar harma auglýsingar forsetaframbjóðenda – „Borða pulsur úr gösuðum þjáðum svínum“

Grænkerar harma auglýsingar forsetaframbjóðenda – „Borða pulsur úr gösuðum þjáðum svínum“
Fréttir
Í gær

Sendiherra Trump á Íslandi þykist vera kúreki í kosningabaráttu sinni – „Það er ekki hægt að skálda þetta“

Sendiherra Trump á Íslandi þykist vera kúreki í kosningabaráttu sinni – „Það er ekki hægt að skálda þetta“
Fréttir
Í gær

Svívirðileg brot gegn sjö ára stjúpdóttur

Svívirðileg brot gegn sjö ára stjúpdóttur
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum